Skíðafélag Dalvíkur Skíðafélag Dalvíkur  

Fréttir
Svæðið
Gisting
Æfingar og Mót
Úrslit móta
Myndasíða
Lög
Afreksfólk
Nefndir
Saga félagsins
Til sölu
Tenglar
Forsíða Fréttir Svæðið Gisting Stjórn og nefndir Lög Mót Úrslit móta Saga félagsins Afreksfólk Tenglar Myndir Til sölu
Skíðasvæðið Böggvisstaðafjalli

Skíðasvæðið í Böggvisstaðafjalli
Smelltu á myndina til að fá stærri mynd (70 KB)

-->
Upplýsingasími svæðisins er 878 1606.
Mán. - Fim. Föstudagar Lau. - Sun.
15:00 - 19:00 Lokað 12:00 - 16:00

e. 1. feb:
Nánar auglýst síðar

Lyftugjöld
  Dagskort
virkir dagar
Dagskort
helgar og hátíðisdagar
Kvöldopnun
20:00-22:00
Auglýst sérstaklega
Vetrarkort
15 ára og yngri 600 800 500 10.000
Fullorðnir 1.400 1.600 600 14.000

Fullorðnir teljast þeir sem fæddir eru 1993 og fyrr
Börn sem fædd eru 2004 og síðar borga ekki lyftugjöld en við mælum endregið með að keypt séu handa þeim lykilkort. Þau kosta 1000 kr.

Fjölskylduafsláttur af vetrarkortum:
20% ef keypt eru 2 kort eða fleiri

Hægt að dreifa greiðslum niður á allt að 10 skipti. Greiðslum er aðeins hægt að skipta ef greitt er með kreditkorti.

Athugið að ef ekki er gengið frá greiðslu vetrarkorta á fyrsta skíðadegi þarf að greiða daggjöld. Við hvetjum þá sem ætla að kaupa árskort að gera það strax. Starfsmenn svæðisins hafa ekki í neinum tilfellum leyfi til að hleypa fólki á skíði án þess að búið sé að greiða lyftugjöld. Ef einhverjar athugasemdir eru við ofangreint þá vinsamlegast snúið ykkur til stjórnar félagsins. Vinsamlegast virðið þessa reglu.

Nú er almenningssíminn á skíðasvæðinu þannig að kaupa þarf kort til þess að getað hringt, kosta 1000 krónur eða 2000 krónur. Slegið er inn sex stafa pin númer á undan númerinu sem á að hringja í. Einnig er hægt að hringja kollekt með því að velja *888* og hringja síðan í númerið. Aðeins er hægt að hringja kollekt til viðskiptavina símans. Athugið að aðrir símar á skíðasvæðinu eru ekki ætlaðir fyrir almenning nema í neyðartilfellum. Síðasta vetur bar á því að iðkendur voru ekki með kort til þess að hringja og því nokkuð um að símar svæðisins voru notaðir. Þannig verður það ekki í vetur og verður öllum vísað á almenningssímann.

Á svæðinu eru tvær lyftur, neðri lyftan er af gerðinni Leitner og er 700 metra löng. Beint í framhaldi af henni er lyfta af gerðinni Doppelmayer og er hún 500 metra löng, samtals 1.200 metra langar og fallhæðin er 322 metrar.
Einn snjótroðari sinnir daglegri troðslu á svæðinu og er annar til taks á álagstímum. Ný lýsing er á svæðinu, um 1.200 metra löng brekka er lýst.

Við erum mjög sveigjanleg með opnunartíma þegar hópar eru hjá okkur og opnum svæðið utan hefðbundins tíma sé þess óskað.

Skíðaleiga er á staðnum og eru skíði og skór frá barnastærðum upp í fullorðinsstærðir.

Hægt er að fá skíðakennslu um helgar og er kennd 1 klst í senn gegn gjaldi.

Nánari upplýsingar um svæðið fást hjá starfsmönnum þess á opnunartíma í símum 466-1010 og 466-1005. Umsjónamaður svæðisins er Einar Hjörleifsson í síma 898 3347. Upplýsingasími svæðisins er 878 1606.

Gott göngusvæði er í nágrenni skíðasvæðisins og fjölmargar gönguleiðir út frá því. Gönguhringur er troðinn daglega ef aðstæður leyfa. Hringurinn er um 2 km langur og liggur um hólana umhverfis Brekkusel, sem er skáli félagsins, og niður að Sundlaug Dalvíkur sem er í um 500 metra fjarlægð frá skíðasvæðinu.

Aðstaða fyrir brettafólk er góð, landslagið mjög fjölbreitt og stutt að fara fyrir þá sem vilja ganga á fjöll.

Skíðaskálinn Brekkusel

Sjálfvirk veðurathugunarstöð á Dalvík

Vefmyndavél í samvinnu við Sportvík

Vefmyndavél Dalvíkurbyggðar

Sjálfvirk veðurstöð við Dalvíkurhöfn

SMI

SMI

ogVodafone

Skíðasport.is

Sagacapital.is

Live-timing

© gulli.net 2001-2009
Gunnlaugur Jónsson
Skíðafélag Dalvíkur - Brekkuseli - 620 Dalvík
Sími: 466 1010 - Fax: 466 1005
skidalvik@skidalvik.is