Skíðafélag Dalvíkur Skíðafélag Dalvíkur  

Fréttir
Svæðið
Gisting
Æfingar og Mót
Úrslit móta
Myndasíða
Lög
Afreksfólk
Nefndir
Saga félagsins
Til sölu
Tenglar
Forsíða Fréttir Svæðið Gisting Stjórn og nefndir Lög Mót Úrslit móta Saga félagsins Afreksfólk Tenglar Myndir Til sölu
Saga Skíðafélags Dalvíkur

Skíðafélag Dalvíkur er stofnað í nóvember 1972. Það var Jón Halldórsson sem var frumkvöðull að því að reisa skíðalyftu í Böggvisstaðafjalli. Hann fékk í lið með sér áhugasama menn og gengu þeir í hús og söfnuðu fé til að reisa hana. Bæjarfélagið greiddi það sem upp á vantaði. Sú lyfta var reist skammt fyrir ofan bæinn. Í kringum þessa lyftuuppsetningu var stofnað félag og voru stofnendur áhugamenn um skíðaíþróttir á Dalvík. Mikið líf myndaðist í fjallinu eftir að lyftan var byggð, því ekki var mikið annað að viðhafast á þessum tíma.

En lyftan sem að allir héldu að myndi duga um alla eilífð varð á 3 - 5 árum allt of lítil og því var farið í að reisa aðra lyftu ofar í fjallinu og var sú toglyfta ( sem kölluð er efri lyfta ) tekin í notkun haustið 1976. Vinsældir skíðaiðkanna á Dalvík jukust og setti fólk meiri kröfur. Það sama gerði vinnueftirlit ríkisins. Kröfur um aðbúnað á skíðasvæðum urðu harðari, og varð toglyftan sem var byggð 1972 gerð úrelt. Því var sú lyfta fjarlægð og önnur ný reist. Framkvæmdir við lyftuna hófust að hausti ´85 og var lyftan vígð í janúar ´86. Við þetta stækkaði svæðið um helming og er svæðið núna eitt það fjölbreyttasta á landinu. Samtals eru lyfturnar um 1200 m langar og er fallhæðin í þeim rúmlega 300m. Báðar lyfturnar geta flutt samtals 850 manns á klukkustund. Árið 1981 eignist Skíðafélagið sinn fyrsta snjótroðara sem notaður var til ársins 1995 er annar nýrri var keyptur. Brekkusel, skáli Skíðafélagsins stendur neðst á skíðasvæðinu og var hann tekinn í notkun 1992. Skálinn er á tveimur hæðum og er þar gistirými fyrir allt að 40 manns en hann er alls um 360 m2.

Skíðafélagið hefur átt marga efnilega skíðamenn. Þar ber fyrstan að nefna Daníel Hilmarsson en hann var fyrsti Dalvíkingurinn sem sló í gegn í alpageinum, hann var einnig einn af stofnendum skíðafélagsins. Björgvin Björgvinsson varð heimsmeistari unglinga í flokki 16 - 17 ára í Frakklandi veturinn 1998. Sveinn Brynjólfsson var valin í Ólympíulið Íslands sem var sent til Nagano í Japan. Þar keppti hann í svigi og var eini Islendingurinn sem skilaði sér í mark. Einnig hefur félagið átt fjöldan allan af afreksmönnum, sem dreift hafa sér á þau ár sem félagið hefur verið starfrækt.

Vefmyndavél í samvinnu við Sportvík

Vefmyndavél Dalvíkurbyggðar

Sjálfvirk veðurstöð við Dalvíkurhöfn

SMI

SMI

ogVodafone

Skíðasport.is

Sagacapital.is

Live-timing

© gulli.net 2001-2009
Gunnlaugur Jónsson
Skíðafélag Dalvíkur - Brekkuseli - 620 Dalvík
Sími: 466 1010 - Fax: 466 1005
skidalvik@skidalvik.is