|
Samantektarþáttur frá Skíðamóti Íslands á N4 |
|
Miðvikudagur, 31. mars 2010 20:06 |
|
Á morgun fimmtudag (skírdag) kl. 18:45 verður sýndur samantektarþáttur frá Skíðamóti Íslands á N4. Þeir sem eru með myndlikil frá Digital Ísland geta séð þáttinn þar. |
|
Þáttur frá Skíðamóti Íslands á RUV |
|
Miðvikudagur, 31. mars 2010 20:03 |
|
Rúmlega klukkutíma samantektarþáttur frá Skíðamóti Íslands er á dagskrá sjónvarpsins, laugardaginn 3. apríl kl. 17:45. |
|
Skíðamóti Íslands 2010 lokið |
|
Mánudagur, 29. mars 2010 19:16 |
|
Skíðamóti Íslands 2010 lauk í dag með verðlaunaafhendingu í menningarhúsinu Bergi fyrir keppni dagsins í alpagreinum. Fyrr í dag kláraðist gangan með boðgöngu. Þrátt fyrir að veðurguðirnir hafi sett strik í reikninginn þá tókst okkur að klára allt nema samhliðasvigið sem átti að vera á dagskrá í dag. Skíðafélögin á Ólafsfirði og Dalvík þakka keppendum og gestum við fyrir gott mót svo og öllum þeim sem að mótahaldinu komu sem voru um 80 manns. Öll úrslit verða komin inn á síðuna seinna í kvöld, bæði fyrir gönguna í gær og dag og alpagreinar í dag. |
|
|
Mánudagur, 29. mars 2010 14:12 |
|
Nú er svigi karla á Skíðamóti Íands lokið. Óstaðfest úrslit er að finna undir alpargreinar hér til vinstri. Seinni ferð kvenna hefst kl:14:45 |
|
Mánudagur, 29. mars 2010 13:20 |
|
Keppni í boðgöngu hefst við golfskálann í Ólafsfirði kl. 14:00. Keppni í svigi er á áætlun og hefja konurnar fyrri ferð kl. 12:45. Seinni ferð hjá körlum hefst síðan kl. 13:30 en í gær tókst að ljúka fyrri ferð hjá þeim.. Konur fara síðan seinni ferð kl. 14:15. |
|
|
Fyrri ferð hjá konum lokið |
|
Mánudagur, 29. mars 2010 13:23 |
|
Nú er fyrri ferð í svigi kvenna lokið. Karlarnir fara seinni ferðina kl. 13:30. |
|
Mánudagur, 29. mars 2010 11:56 |
|
Keppni í boðgöngu hefst við golfskálann í Ólafsfirði kl. 14:00. Keppni í svigi er á áætlun og hefja konurnar fyrri ferð kl. 12:45. Seinni ferð hjá körlum hefst síðan kl. 13:30 en í gær tókst að ljúka fyrri ferð hjá þeim.. Konur fara síðan seinni ferð kl. 14:15. |
|
|
|
|
<< Fyrsta < Fyrri 1 2 3 4 5 6 7 Næsta > Síðasta >>
|
|
Síða 1 af 7 |