    <language>is</language>
Skíðafélag Dalvíkur
Skemmtilegu en krefjandi UMI 2026 á Ísafirði lokið.
Um helgina fór fram Unglingameistaramót Íslands á Ísafirði. Keppendur voru á aldrinum 12-15 ára og var keppt í svigi og stórsvigi.
SkíDalvík átti 12 þátttakendur á mótinu og stóðu krakkarnir sig mjög vel í krefjandi aðstæðum. 
Á fimmtudeginum var keppt í svigi en um var að ræða mót sem upphaflega átti að halda í Bláfjöllum fyrr í vetur, en þurfti að fresta þá vegna veðurs. Keppni hófst hjá 12-13 ára hópnum um 16.00, en eldri hópurinn sem keyrði á eftir var að ljúka keppni um 21.00. 
Á föstudag þegar keppni hafði verið aflýst var ákveðið að fara í vettvangsferð um nærliggjandi sveitir þar sem Sveinn Brynjólfsson fræddi bæði krakkana og foreldra um helstu kennileiti og kosti vestfjarða. 
Ákveðið var því að keyra bæði svig og stórsvig laugardaginn 12. apríl, og fór sú keppni fram við nokkuð krefjandi aðstæður en gékk þó vel að klára bæði mótin. 
Sunnudag 12. apríl stóð til að keppt yrði í samhliðasvigi, en ákveðið var að aflýsa þeirri keppni vegna slæms veðurútlits sem svo varð raunin. 
Eins og áður segir stóðu okkar fólk sig mjög vel. 
Á fimmtudag (auka svig) voru á palli
Stúlkur 12-13 ára:
Álfrún Mjöll Sveinsdóttir 3.sæti
Stúlkur 14-15 ára
Jóhanna Skaftadóttir 1.sæti
Drengir 14-15 ára
Barri Björgvinsson 1.sæti
Unglingameistaramót 
Svig.
Stúlkur 14-15.ára
Jóhanna Skaftadóttir 2. sæti
Valgerður Fríður Lorenz Tryggvadóttir 4. sæti
Eyrún Helka Helgadóttir 5. sæti
Drengir 14-15 ára
Barri Björgvinsson 1. sæti
Stórsvig.
Stúlkur 14-15.ára
Eyrún Helka Helgadóttir 4. sæti
Drengir 14-15 ára
Barri Björgvinsson 1. sæti
Alpatvíkepnni (samanlagt svig og stórsvig)
Stúlkur 14-15 ára
Jóhanna Skaftadóttir 3.sæti
Drengir 14-15 ára
Barri Björgvinsson 1. sæti
Þá veitti Skíðasamband Íslands verðlaun fyrir Bikarkeppni SKÍ 2026. 
Þar urðu sigurvegarar í flokki 14-15 ára 
Drengir: Barri Björgvinsson.
Stúlkur: Jóhanna Skaftadóttir.
Núna fer að líða að lokum þessarar vertíðar, og aðeins Andrésar andarleikarnir eftir, en þeir fara fram 22.-25 apríl.
Til hamingju með árangurinn og áfram fulla ferð á fjalirnar.
Jónsmót í þriðju tilraun.
Í byrjun páska tókst loksins í þriðju tilraun að halda Jónsmótið okkar. Blásið var í lúðrana miðvikudaginn 1.apríl þegar keppendur og fylgdarlið mætti í sundlaug Dalvíkur.
Á skírdag hófst svo keppni í svigi hjá 11-13 ára hópnum í fínasta veðri. Á meðan keppni stóð, breyttust aðstæður heldur betur og á endanum var ákveðið að klára fyrri ferð og láta þar við setið. Svigmóti hjá 9-10 ára var frestað um tvo tíma og voru þau að ljúka keppni um 17.00.
Á föstudaginn langa var svo stórsvig hjá öllum aldurshópum, aðstæður voru mjög góðar til mótahalds, logn, bjart og -3°C. Keppni í öllum flokkum var lokið upp úr hádegi og fengu keppendur og áhangendur súkkulaði og kringlur áður en heim var haldið.
Jónsmótið varð 30 ára í ár og við það tilefni var Björgvin Hjörleifsson hugmyndasmiður mótsins heiðraður. Takk fyrir þitt framlag Björgvin.
Þökkum öllum þátttakendum og áhangendum fyrir komuna.
Sjáumst að ári.  
Barri Björgvinsson sigraði firmakeppni Skíðafélagsins 2026
Eins og svo oft áður fór firmakeppni Skíðafélagsins fram á öðrum degi páska. Oft á tíðum hafa aðstæður verið misjafnar sérstakelga þegar páskarnir eru seint á ferðinni. Annað var uppi á teningnum í ár. Topp aðstæður í Böggvisstaðafjalli, bjart, nánast log (þó svo að appelsínugular viðvaranir og mikill vindur hafi verið hér allt í kring) og snjóalög upp á 10.
Um 56 keppendur voru skráðir til leiks, börn og fullorðnir á öllum aldri. 
Keyrð voru 26 port í samhliðasvigi, þar sem gefið er forskot eftir aldri.
Leikar fóru þannig að Barri Björgvinsson stóð uppi sem sigurvegari í ár. Torfi Jóhann Sveinsson hafnaði í öðru sæti og Álfgrímur Bragi Jökulsson lenti í þriðja sæti. 
Þökkum við öllum þátttakendum fyrir daginn.
Þá þökkum við einnig þeim fjölmörgu fyrirtækjum sem tóku þátt.
Það er komið að vertíðarlokum
Það er komið að vertíðarlokum.
Eftir misjafnan og frekar erfiðan vetur er komið að vertíðar lokum. Það var lagt upp með í vetur að stytta tímabilið í annan endan eftir mjög erfiðan vetur 2024-2025 þar sem innkoma var langt undir væntingum sökum erfi...]]></description>
Óskar Valdimar tvöfaldur Íslandsmeistari og Bikarmeistari SKÍ 2026 í flokki 16-17ára.
Í gær (laugardag 28.mars) lauk Skíðamóti Íslands sem haldið var í Hlíðarfjalli. Fyrirhugað var að keppa í samhliðasvigi í dag, en vegna aðstæðna var því aflýst. 
Okkar menn voru í eldlínunni í gær þegar keppt var í stórsvigi. Aðstæður voru mjög góðar til mótahalds, sól, kalt og logn. En töluvert hafði snjóað aðfaranótt laugardags og senkuðu mótshaldarar keppni um tvo tíma til að vinna brekkur. 
Eftir fyrri ferð var Torfi Jóhann í 6 sæti, Óskar Valdimar í því 22 sæti og Matthías í 32 sæti. Í seinniferð voru þeir bræður Torfi og Óskar nánast á sama tíma en sá yngri hafi það með 0.03sek. Torfi endaði í 7.sæti Óskar Valdimar í þvi 18 og Matthías keyrði sig upp um eitt sæti og endaði í 31.sæti. 
Í flokki 16.-17 ára endaði Óskar Valdimar í 3 sæti og Matthías Helgi í því 10. 
Í alpatvíkeppni sem er samanlagður árangur í svigi og stórsvigi stóð Óskar Valdimar uppi sem sigurvegari eftir keppni helgarinnar. 
Eftir að keppni lauk í gær bauð Skíðaféalg Akureyrar til kaffisamsætis á Múlaberg cafe þar sem kringdir voru bikarmeistarar SKÍ. 
Í fullorðinsflokki deildu þeir bræður pallinum. Torfi Jóhann í 2.sæti og Óskar Valdimar í 3.sæti. 
Í flokki 16-17 ára var það Óskar Valdimar sem stóð uppi sem Bikarmeistari SKÍ.
Þá voru einnig veitt verðlaun í liðakeppni, en þar hafnaði tríóið okkar í þriðja sæti á eftir Ármann og ÚÍA sem sigraði þá kepnni.
Núna er keppnis vertíðinni lokið hér á landi í fullorðinsflokki, og verðskuldað æfingafrí fram yfir páska. En þá hefst næsta vertíð. Æfingar halda áfram svo lengi sem snjóalög og aðstæður leyfa. 
Við óskum tríóinu okkar til lukku með veturinn.
Fulla ferð á fjalirnar!!!
Fullorðinsflokkurinn á 66°N-cup og SMÍ2026
Það hefur verið í nógu að snúast hjá meistaraflokk SkíDalvik undanfarið. En síðast liðna viku fór fram 66°N-cup í Hlíðarfjalli,  þar sem keppt var í tveimur svigum og tveimur stórsvigum. Veður og aðstæður settu strik í mótahaldið og því voru mótin keyrð á tveimur dögum í stað þriggja. 
Okkar menn þeir Matthías Helgi, Óskar Valdimar og Torfi Jóhann tóku allir þátt og skiluðu sér vel í þessum mótum. Punktabætingar hjá þeim öllum.
Í dag hófst svo Skíðamót Íslands einnig í Hlíðarfjalli. Upphaflega stóð til að byrja mótið á stórsvigi, en vegna aðstæðna og veðurs var ákveðið að keppt yrði í svigi í dag, 
Okkar menn stóðu sig með prýði og héldu áfram að bæta punktastöðu sína. 
Í fullorðins flokki lenti Torfi Jóhann í 5 sæti, Óskar Valdimar í 8 sæti og Matthías Helgi í 19 sæti. 
Í flokki 16-17 ára þá sigraði Óskar Valdimar og Matthías Helgi lenti í 6 sæti. 
Með Íslandsmeistaratitlinum tryggði Óskar Valdimar sér einnig Bikarmeistaratitil SKÍ í flokki 16-17 ára fyrir veturinn 2025/2026.
Á morgun laugardag fer svo keppni fram í stórsvigi, áætlað er að hefja keppni kl 10.00, en vegna veðurs eru mótshaldarar  með það opið að seinka keppni þar sem aðstæður gætu orðið erfiðar til mótahalds í bítið. Nánari upplýsingar um mótið er að finna á heimasíðu og Facebooksíðu skíðafélags Akureyrar og á Facebook.
Til hamingju með árangurinn strákar og gangi ykkur vel á morgun.
Fulla ferð á fjalirnar.
Dagskráin framundan - Kvöldopnun og Páskar
Það er mikið um að vera næstu daga. Á þriðjudaginn 31. mars verður hjá okkur Sleða og Skíðakvöld þar sem við ætlum að safna fyrir unga hetju á Dalvík.En allur ágóði kvöldsins rennur til fjölskyldu Úlfars Baldvins sem á stórt verkefni framundan og lan...]]></description>
Torfi Jóhann á HM unglinga í Narvik Noregi.
Á dögunum birti Skíðasamband Íslands lista yfir þá þátttakendur sem munu keppa fyrir Íslands hönd á heimsmeistaramóti unglinga sem fram fer í Narvík í Noregi dagana 5-15 mars nk.
Skíðafélag Dalvíkur á einn fulltrúa í hópnum, en það er Torfi Jóhann Sveinsson sem mun keppa í svigi og stórsvigi.
Torfi heldur utan nk. sunnudag og mun æfa á svæðinu fram að keppni sem verður föstudaginn 13.mars stórsvig og sunnudaginn 15.mars verður keppt í svigi.
Til lukku með þetta Torfi Jóhann og gangi þér vel.
Hægt er að fylgjast með gangi mála í Narvik á heimasíðu mótsins.
Fullorðinsflokkurinn keppti í Oddskarði.
Um helgina stóð til að keppa í tveimur stórsvigum og einu svigi í Oddskarði. Fyrsta stórsvig helgarinnar var einnig hluti af bikarmótaröð SKÍ samhliða FIS-ENL móti, en hin mótin voru engöngu FIS-ENL mót.  Eftir að keppni lauk í stórsvigi á laugardag, ákváðu mótshaldarar í samráði við þjálfara og keppendur að klára einnig svig mótið. En veðurspá fyrir sunnudag leit ekki vel úr. Það má því segja að dagurinn hafi verið nokkuð langur, en aðstæður og veður til keppnishalds í Oddskarðinu voru með besta móti, hægur vindur sól og frost. 
Okkar menn stóðu sig með príði og má sjá árangurinn hér fyrir neðan.]]></description>
Mikið um að vera á morgunn 28. febrúar.
Dalvík Snocross 2026Frítt á viðburðinn – lifandi útivistarsvæði.Skíðafélag Dalvíkur verður með veitingar á svæðinu, það verða grillaðir Fjalla Hamborgarar á pallinum hjá okkur þar sem einnig er að finna besta útsýnissvæðið yfir Snocrossbrautina.
Aðg...]]></description>
Opnun í skólafríum núna í febrúar.
Þá eru skólafríin að skella á og lengjum við því opnunina hjá okkur.frá og með miðvikudeginum 18. febrúar og út mánuðinn opnum við því klukkan 10:00 alla daga.Enn sem komið er vantar okkur snjó í efri lyftuna en aðstæður í Neðri Lyftubrekku og Barnab...]]></description>
Óhefðbundin helgi framundan.
Óhefðbundin helgi framundan. Núna helgina 13-15 febrúar verður ýmislegt í gangi, helst er að nefna að það verður FIS snjóbrettamót á Dalvík. Keppt verður í Rails og verða um 40 keppendur á mótinu.Keppt verður milli 09:00 og 13:00 laugardag og sunnuda...]]></description>
Styrktaraðilar óskast...
Vegna áskorana þá látum við vaða hér á miðlum okkar.
En eins og flestir vita þá er ansi snjólétt þennan veturinn og þrátt fyrir þokkalega tíð eru snjóalögin þunn og viðkvæm. Skíðafélagið er hreinlega búið með það fjármagn og rúmlega, sem ætlað var í...]]></description>
Frábærar aðstæður til mótahalds um sl.helgi.
Eins og áður hefur komið fram var Bikarmót SKI/FIS-ENL mót haldið í Böggvisstaðafjalli um sl.helgi. Þrátt fyrir lítil snjóalög voru aðstæður til mótahalds með besta móti. Landsþekkta "parketið" í fjallinu var úr efstu hillunni og á sunnudeginum lék sólin við keppendur, áhangendur og starfsmenn mótsins. Skíðafélag Dalvíkur átti fjóra keppendur á mótinu um helgina, en það voru þeir Matthías Helgi Ásgeirsson sem er að hefja sitt fyrsta ár í fullorðinsflokki, þá voru þeir bræður Óskar Valdimar og Torfi Jóhann Sveinssynir mættir til leiks og á sunnudeginum dró Dagur Ýmir Sveinsson fram fjalirnar rifjaði upp gamla takta. 
Strákarnir stóðu sig allir með mikillri príði.]]></description>
Svig mót um helgina og flott veðurspá.
Þrátt fyrir ansi krefjandi aðstæður í vetur dugar framleiddi snjórinn okkur til að haldaFIS ENL mót um helgina í svigi. Keppt verður í Neðri Lyftubrekku og er start klukkan 10:15 báða dagana.Mótið mun raska almennri opnun hjá okkur vegna hversu takam...]]></description>
Fréttir af skíðasvæðinu.
Komið sæl og gleðilegt árið kæru vinir.Þó svo að varla hægt sé að segja að það hafi komið vetur og hvað þá almenn opnun þá höfum við ekki verið verkefnalaus hér á skíðasvæðinu.Segja má að fasi 2 í uppbyggingu á nýja aðstöðu húsinu hafi byrjað síðasta...]]></description>
Byrjendanámskeið á brettum
Við stefnum á að vera með byrjendanámskeið á snjóbrettum fyrir 5 ára og eldri sem mun byrja 8. janúar og vera í 5 skipti.]]></description>
Við opnum
Það er komið að því......⛷️⛷️🏂🏂í 100% framleiddum snjó.Við opnum á morgun 20. desember fyrir almenning 12:00-17:00 Þess ber að geta að það er þunnt á þessu, það er smá jarðvegur í snjónum efst og brekkurnar mjóar.Opnar verða Barnabrekka og Neðri Lyft...]]></description>
Æfingar og æfingatafla
Eftir annasaman nóvembermánuð við snjóframleiðslu er okkur að takast það að opna neðra svæðið í vikunni og hefja æfingar samkvæmt æfingatöflu fyrir 3. bekk og eldri þann 3. desember. Upplýsingar til foreldra barna í 1-2 bekk berast síðar og áætlað er...]]></description>
Almennur félagsfundur
Það verður félagsfundur hjá Skíðafélagi Dalvíkur þann 18.september kl. 17:00-19:00 í Brekkuseli. Allskonar mál á dagskrá, kaffi og kleinur.
Hvetjum sem flesta til að mæta og taka þátt í stefnu félagsins.]]></description>