Jónsmót

Á facebooksíðu Jónsmótsins mun verða hægt að nálgst allar upplýsingar um Jónsmótið ráslistar ættu að verða komnir inn að kvöldi fimmtudags

Hér fyrir neðan er mótsboð/dagskrá Jónsmóts ásamt skráningareyðublaði og viljum við vinsamlegast biðja forsvarsmenn félaga að skrá keppendur á eyðublaði og skyla því til mótanefndar á emalið jonsmot@gmail.com

 

https://www.facebook.com/Jonsmot.skidalvik/

 

JÓNSMÓT

MINNINGARMÓT UM JÓN BJARNASON

3-5. Mars 2023

Ágæti viðtakandi

Skíðafélag Dalvíkur boðar til árlegs skíðamóts með sundívafi sem haldið er til minningar um Jón Bjarnason, sem var einn af stofnendum félagsins. Mótið fer fram dagana 3-5. mars n.k. Það er ætlað 9-13 ára(2009-20013) börnum af öllu landinu. Keppni er að hluta til með óhefðbundnu sniði, keppt verður í stórsvigi (1 umferð), 25 metra bringusundi í 9-10 ára flokki, 50 m bringusundi í 11-13 ára flokki og svigi (2 umferðir). Verðlaun verða veitt fyrir hverja grein í hverjum aldursflokki og einnig verða verðlaun fyrir tvíkeppni, þ.e. stórsvig/sund. Mótsgjald er 7.000 krónur á keppanda, innifalið í mótsgjaldi eru lyftugjöld fyrir keppendur á keppnisdögum, hressing í fjalli, veitingar á mótslitum og aðgangur í sundlaug.

 

Mótshaldarar áskilja sér rétt til breytinga á dagskrá.

 

Við vonum að sem flestir sjái sér fært að mæta og eigi hér á Dalvík góða og skemmtilega helgi. Þátttöku skal tilkynna á netfangið jonsmot@gmail.com fyrir 28.febrúar. ATH fylla þarf út skráningarblað í viðhengi.

 

Ef frekari upplýsinga er óskað þá er hægt að senda tölvupóst á netfangið jonsmot@gmail.com 



Bestu kveðjur,  Mótanefnd Skíðafélags Dalvíkur











DAGSKRÁ 

Fimmtudagur  2. mars     Kl 20:00 - Fararstjórafundur / Upplýsingafundur. RAFRÆNT.

 

Föstudagur 3. mars – Kvöldmót keyrt í ljósum 11 - 13 ára Stórsvig

 

Kl. 18:00 Afhending númera í Brekkuseli - Númera standur.

Kl. 18:45 Brautarskoðun 11-13 ára

Kl. 19:30 Start 11-13 ára (ath aðeins ein ferð)

Kl. 20:15 Verðlaunaafhending við Brekkusel.

Kakó og kringlur strax að keppni lokinni

Laugardagur 4. mars 

SVIG 11-13 ára
Kl. 09:30 Brautarskoðun 11-13 ára fyrri ferð (Ingubakki - hæ. Við neðri lyftu)
Kl 10:15 Fyrri ferð svig 11--13 ára.
Kl: 11:45 Seinni ferð svig 11-13 ára. 

Verðlaunaafhending að lokinni keppni

Kókómjólk og grilluð pylsa

 

Kl.1130 Númeraafhending 9-10 ára - Númerastandur við Brekkusel.

STÓRSVIG
Kl: 12:30 Brautarskoðun 9-10 ára
Kl: 13:30 Start  9-10- ára Stórsvig (ath aðeins ein ferð)
Verðlaunaafhending við Brekkusel að lokinni keppni.

 

SUND Áætlauð dagskrá 

Kl. 15:30 Start sund.

 

Pizzuveisla, verðlaunaafhending og mótslit strax að sundi loknu.

Sunnudagur 5. mars Svig 9-10 ára

Kl. 09:30 Brautarskoðun 9-10 ára fyrri ferð
Kl 10:15 Fyrri ferð svig 9-10 ára
Kl: 11:30 Seinni ferð 9-10 ára

ATH svig 9-10 ára er keyrt í stubbum

Kakó og kringlur strax að keppni lokinni

Verðlaunaafhending við Brekkusel að lokinni keppni.