Jóhannsbikar 2023

 Þetta árið var það Skíðafélag Siglufjarðar sem fékk Jóhannsbikarinn (Jákvæðnis bikarin). 

Bikarinn er veittur fyrir glaða og jákvæða framkomu og hegðun á meðan móti stendur. Sérstök nefnd á vegum mótsins velur eitt félag, þar sem horft er yfir hópinn og eru engir undanskildir. Litið er til hegðunar foreldra, þjálfara og keppenda. En þannig viljum við hafa þetta að allir séu saman í því að skapa stemmningu, gleði og góðar minningar í sportinu okkar.

Í ár eins og áður var valið erfitt, þar sem allir voru í góðum gír, en Siglfirðingar voru með mjög góða liðsheild, hvöttu hvort annað vel áfram í brekkunni og í lauginni og voru áberandi á mörgum sviðum og eru því vel að viðurkenningunni komin í ár.

Skíðafélag Siglufjarðar mætti með 15 keppendur, fullt af foreldrum og þjálfara á svæðið.

Til hamingju Skíðafélag Siglufjarðar og haldið áfram að njóta í brekkunum ;)