Brekkusel útleiga og gisting

Skíðaskálinn Brekkusel stendur neðst á svæðinu. Þar geta þeir sem vilja hvílt lúin bein, tyllt sér niður eða borðað nesti sitt í salnum eða nýtt sér þær veitingar sem boðið er uppá svo sem samlokur,Kakó,kaffi, gos, sælgæti og fleira.

Gisting

Í Brekkuseli er boðið upp á gistingu í svefnpokum fyrir allt að 40 manns en einnig er hægt að fá rúm í þremur herbergjum, tveggja og þriggja manna en með því fækkar svefnpokaplássum í 30.

 

Borðsalur

Rúmgóður salur með sæti fyrir um 60 manns er á neðri hæð hússins. Einnig geta þeir sem í skálanum gista séð sér fyrir mat sjálfir og fá þá aðgang að rúmgóðu eldhúsi hússins sem er með öllum búnaði til eldamennsku. Allur borðbúnaður er á staðnum. Brekkusel hefur einnig verið mjög vinsælt fyrir hvers kyns veislur og fundarhöld.

Frá Brekkuseli er aðeins 15 mínútna gangur í alla þjónustu á Dalvík.

Allar nánari upplýsingar er hægt að fá á staðnum á opnunartíma í síma 466 1010 eða á email skidalvik@skidalvik.is.