Jóhannsbikar 2024

Þetta árið var það Skíðafélag Dalvíkur sem fékk Jóhannsbikarinn (Jákvæðnis bikarin). 

Bikarinn er veittur fyrir glaða og jákvæða framkomu og hegðun á meðan móti stendur. Sérstök nefnd á vegum mótsins velur eitt félag, þar sem horft er yfir hópinn og eru engir undanskildir. Litið er til hegðunar foreldra, þjálfara og keppenda. En þannig viljum við hafa þetta að allir séu saman í því að skapa stemmningu, gleði og góðar minningar í sportinu okkar.

Í ár eins og áður var valið erfitt, þar sem allir voru í góðum gír, en Dalvíkingar voru með mjög góða liðsheild, hvöttu hvort annað vel áfram í brekkunni, lauginni og á verðlaunaafhendingu og voru áberandi á mörgum sviðum og eru því vel að viðurkenningunni komin í ár.

Skíðafélag Dalvíkur var 36 keppendur, fullt af foreldrum og áhangendum.

Til hamingju Skíðafélag Dalvíkur og haldið áfram að njóta í brekkunum ;)