Aðalfundur Skíðafélags Dalvíkur 27. maí.

 

 

 

Aðalfundur Skíðafélags Dalvíkur verður haldinn í

Menningarhúsinu Bergi miðvikudaginn 27. maí

2026 kl. 17:00 til 18:30.

 

Dagskrá:

Venjuleg aðalfundarstörf

Lagabreytingar.

Tillaga að breytingu 10. greinar:

Félagsstjórn

10.gr

Stjórn félagsins er kjörin á aðalfundi og skipa hana 5 aðalmenn kjörnir til tveggja ára. Embættisskipting aðalstjórnar skal vera svohljóðandi: formaður, varaformaður, ritari, gjaldkeri og meðstjórnandi.

Allir í stjórn skulu kosnir til tveggja ára þannig að þegar ártal er oddatala skal kjósa formann, ritara og meðstjórnanda en þegar ártal er slétt tala skal kjósa varaformann og gjaldkera

Aðalfundur hefur þó heimild til að kjósa einhvern úr stjórninni til annars embættis í stjórn þó kjörtímabili hans sé ekki lokið og skal þá kjósa annan í hans stað, í eitt eða tvö ár eftir því sem við á. Stjórn hefur heimild til þess að skipta með sér verkum þó svo að á aðalfundi sé kosið í embætti.

Komi sú staða upp að stjórnarmaður segir af sér eða hætti í stjórn af persónulegum ástæðum áður en kjörtímabili hans líkur hefur stjórn heimild til þess að finna nýjan stjórnarmann í hans stað fram að næsta aðalfundi.

Tilkynning um framboð til stjórnar skal berast formanni stjórnar eigi síðar en 31. mars fyrir næsta aðalfund. Ef engin framboð berast er stjórn heimilt að framlengja frestinn.

_____________________________________________________________________________________________

Tillaga að breytingu 18 greinar:

Fastanefndir

18. grein

Fastanefndir félagsins eru  foreldraráð, alpagreinanefnd og brettanefnd. Stjórn félagsins ákveður hverju sinni hvort svæðisnefnd sé starfandi og velur henni verkefni eftir þörfum.

Einnig getur stjórnin skipað í aðrar nefndir ef þörf krefur.

Í fastanefndum skulu sitja þrír til fimm aðalfulltrúar. Um allar fastanefndir félagsins gildir að kjörnir og tilnefndir nefndarfulltrúar hafa frjálsar hendur með að velja sér samstarfsaðila.

Fastanefndir félagsins skulu fara að fyrirmælum stjórnar og vera í samráði við stjórn varðandi meðferð fjármuna og bókhaldsreglur sbr. 16. grein.

Þeir sem hafa áhuga á að starfa í fastanefndum félagsins skulu senda félaginu erindi þess efnis fyrir 31. mars fyrir næsta aðalfund.

_____________________________________________________________________________________________

Tillaga að breytingu 18. og 19. greinar:

Greinarnar verði felldar úr lögum þar sem tillaga liggur fyrir um að færa þær inn í 18. grein laga.

 

Stjórnin