Björgvin sigraði í Lutsen.

Í dag var keppt í svigi í Lutsen í Bandaríkjunum. Björgvin Björgvinsson, Sigurgeir Halldórsson og Gunnar Þór Halldórsson er þar meðal þátttakenda. Sigurvegari í dag varð Björgvin Björgvinsson. Sigurgeir varð í 13. og Gunnar Þór 14. Á morgun verður aftur keppt í svigi.