Það er mikið um að vera næstu daga.
Á þriðjudaginn 31. mars verður hjá okkur Sleða og Skíðakvöld þar sem við ætlum að safna fyrir unga hetju á Dalvík.
En allur ágóði kvöldsins rennur til fjölskyldu Úlfars Baldvins sem á stórt verkefni framundan og langar okkur að
Leggja þeim lið.
Það kostar 2000 kr. inn og aðeins tekið við seðlum.
Stýrissleðar verða velkomnir í brekkurnar á ákveðnu svæði og mega nota lyftuna.
Foreldrafélagið mun verða með heitt kakó og með því og fer ágóði þeirrar sölu líka í
söfnunina.Komum saman og eigum fallegt kvöld í fjallinu okkar.

Þar á eftir byrjar Páskastemmningin en á hún hefst á fimmtudaginn með Jónsmótinu sem verður líka á föstudaginn.
Mikið hefur snjóað í fjallinu og því nóg pláss fyrir alla.
Okkur hlakkar verulega til að taka á móti ykkur og klára þennan vetur með stæl.
