Dagur Ýmir í úrtakshóp vegna Ólympíuleika ungmenna (YOG) í Gangwon Suður Kóreu 2024

Vonandi fáum við að sjá Dag Ými á stórasviðinu í S-Kóreu í janúar.
Vonandi fáum við að sjá Dag Ými á stórasviðinu í S-Kóreu í janúar.

Frétt af heimasíðu SKÍ

Skíðasamband Íslands hefur valið úrtakshóp fyrir Ólympíuleika ungmenna sem fara fram í Gangwon í Suður Kóreu 19. janúar-1. febrúar 2024.

Það voru nefndirnar hjá SKÍ ásamt afreksstjóra og þjálfurum Hæfileikamótunnar SKÍ sem völdu hópinn. Það mun síðan koma í ljós 18. desember hvaða 4-6 einstaklingar verða valdir til að taka þátt fyrir Íslands hönd á leikunum. Undirbúningur fyrir leikana er vel á veg kominn og hafa öll þessi ungmenni lagt mikið á sig við æfingar og meðal annars mætt á þrekæfingabúðir hérlendis og farið erlendis í haust eða eru á leiðinni í þessum mánuði til að geta stundað æfingar á snjó. Þrjú þeirra eru búsett í Noregi og þar af tvö sem stunda nám í skíðamenntaskóla þar í landi. Það verður spennandi að fylgjast með þessum krökkum í framtíðinni. 

 Skíðasamband Íslands óskar eftirtöldum aðilum til hamingju með sætið í hópnum. 

Alpagreinar

Aníta Mist Fjalarsdóttir - SKA

Eyrún Erla Gestsdóttir - Víking

Rebekka Sunna Brynjarsdóttir - SKA

Sara Möll Jóhannsdóttir - Ármann

Sonja Li Kristinsdóttir - SKA

Þórdís Helga Grétarsdóttir - Víking

Andri Kári Unnarsson - Ármann

Dagur Ýmir Sveinsson - Dalvík

Eyvindur H. Warén - ÚÍA

Ólafur Kristinn Sveinsson - SKA

Þorkell Breki Gunnarsson - Ármann

 

Freestyle (park & pipe)

Jónar Sebastian Giljan Grímsson - KR

 

Skíðaganga

Árný Helga Birkisdóttir - SKA

María Kristín Ólafsdóttir - Ullur

Svava Rós Kristófersdóttir - SFÓ

Unnur Guðfinna Daníelsdóttir - SFÍ

Eyþór Freyr Árnason - SFÍ

Grétar Smári Samúelsson - SFÍ

Hjalti Böðvarsson - Ullur

Róbert Bragi Kárason SKA

 

Snjóbretti

Reynar Hlynsson - BFH

 

 Sigríður Dóra Guðmundsdóttir - Ullur  afþakkaði sæti í skíðagönguhópnum.