Það er komið að vertíðarlokum

Það er komið að vertíðarlokum.

Eftir misjafnan og frekar erfiðan vetur er komið að vertíðar lokum. Það var lagt upp með í vetur að stytta tímabilið í annan endan eftir mjög erfiðan vetur 2024-2025 þar sem innkoma var langt undir væntingum sökum erfiðs tíðarfars. Skíðafélagið varð undir sem nam 10 milljónum í rekstri og eftir miklar viðræður við sveitarfélagið varð útkoman að sveitarfélagið greiddi 10 milljónir fyrirfram af rekstrarfé 2026 til að klára árið 2025. Því hófst veturinn með 10 milljóna halla sem við erum búin að vera að reyna að rétta af. Við höfum reynt að nýta rekstrarféð sem eftir var, ásamt myndarlegum stuðningi frá samfélaginu t.d. með styrkjum í snjóframleiðslu sem skiptu höfuðmáli.

Þrátt fyrir að loks hafi komið náttúrulegur snjór verðum við að draga saman seglin og lágmarka útflæðið sem eftir lifir af árinu til að reyna að rétta við reksturinn.

Það kom reynsla á nýja pallinn hjá okkur í vetur og ekki er ofsögum sagt annað en að pallurinn hafi reynst verulega vel og frábær viðbót við aðstöðuna okkar. það verður spennandi að þróa hann meira og gera enn betri aðstöðu hér á svæðinu.

 

Við erum mjög þakklát fyrir alla þá sem komu og heimsóttu okkur, styrktu félagið

með sjálfboðavinnu eða fjárframlögum, Við vonumst með þessu að koma enn sterkari inn í næsta vetur og óhætt er að segja að

það sé mikil eftirvænting með tilkomu nýrrar viðbótar á svæðið sem kynnt verður formlega

síðar.

Þjálfarar munu hafa samband við iðkendur varðandi æfingar sem vissulega verða áfram 

fram að Andrésarleikunum meðan aðstæður leyfa.

Hlökkum til að taka á móti ykkur 1.des 2026.

Kv. Starfsfólk og Stjórn Skíðafélags Dalvíkur.