Barri Björgvins og Jóhanna Skafta Bikarmeistarar SKÍ í flokki 14 - 15 ára.
Um helgina fór fram Unglingameistaramót Íslands á Ísafirði. Keppendur voru á aldrinum 12-15 ára og var keppt í svigi og stórsvigi.
SkíDalvík átti 12 þátttakendur á mótinu og stóðu krakkarnir sig mjög vel í krefjandi aðstæðum.
Á fimmtudeginum var keppt í svigi en um var að ræða mót sem upphaflega átti að halda í Bláfjöllum fyrr í vetur, en þurfti að fresta þá vegna veðurs. Keppni hófst hjá 12-13 ára hópnum um 16.00, en eldri hópurinn sem keyrði á eftir var að ljúka keppni um 21.00.
Á föstudag þegar keppni hafði verið aflýst var ákveðið að fara í vettvangsferð um nærliggjandi sveitir þar sem Sveinn Brynjólfsson fræddi bæði krakkana og foreldra um helstu kennileiti og kosti vestfjarða.
Ákveðið var því að keyra bæði svig og stórsvig laugardaginn 12. apríl, og fór sú keppni fram við nokkuð krefjandi aðstæður en gékk þó vel að klára bæði mótin.
Sunnudag 12. apríl stóð til að keppt yrði í samhliðasvigi, en ákveðið var að aflýsa þeirri keppni vegna slæms veðurútlits sem svo varð raunin.
Eins og áður segir stóðu okkar fólk sig mjög vel. (Hér má sjá öll úrslit frá mótunum um sl helgi)
Á fimmtudag (auka svig) voru á palli
Stúlkur 12-13 ára:
Álfrún Mjöll Sveinsdóttir 3.sæti
Stúlkur 14-15 ára
Jóhanna Skaftadóttir 1.sæti
Drengir 14-15 ára
Barri Björgvinsson 1.sæti
Unglingameistaramót
Svig.
Stúlkur 14-15.ára
Jóhanna Skaftadóttir 2. sæti
Valgerður Fríður Lorenz Tryggvadóttir 4. sæti
Eyrún Helka Helgadóttir 5. sæti
Drengir 14-15 ára
Barri Björgvinsson 1. sæti
Stórsvig.
Stúlkur 14-15.ára
Eyrún Helka Helgadóttir 4. sæti
Drengir 14-15 ára
Barri Björgvinsson 1. sæti
Alpatvíkepnni (samanlagt svig og stórsvig)
Stúlkur 14-15 ára
Jóhanna Skaftadóttir 3.sæti
Drengir 14-15 ára
Barri Björgvinsson 1. sæti
Þá veitti Skíðasamband Íslands verðlaun fyrir Bikarkeppni SKÍ 2026.
Þar urðu sigurvegarar í flokki 14-15 ára
Drengir: Barri Björgvinsson.
Stúlkur: Jóhanna Skaftadóttir.
Núna fer að líða að lokum þessarar vertíðar, og aðeins Andrésar andarleikarnir eftir, en þeir fara fram 22.-25 apríl.
Til hamingju með árangurinn og áfram fulla ferð á fjalirnar.

Barri Björgvins og Jóhanna Skafta - Bikarmeistarar SKÍ í flokki 14-15 ára

Barri Björgvinsson með "fullt hús" á UMÍ þrefaldur unglingameistari og Bikarmeistari SKÍ

UMÍ svig 14-15 ára. 2.sæti Jóhanna, 4.sæti Valgerður 5.sæti Eyrún

12-13 ára flokkurinn, Álfrún, Katla og Viggó

Hópurinn með farastjóranum Sveini B og Kára B

