Frábærar aðstæður til mótahalds um sl.helgi.

Parketið var úr efstu hillunni um helgina.
Parketið var úr efstu hillunni um helgina.

Eins og áður hefur komið fram var Bikarmót SKI/FIS-ENL mót haldið í Böggvisstaðafjalli um sl.helgi. Þrátt fyrir lítil snjóalög voru aðstæður til mótahalds með besta móti. Landsþekkta "parketið" í fjallinu var úr efstu hillunni og á sunnudeginum lék sólin við keppendur, áhangendur og starfsmenn mótsins. Skíðafélag Dalvíkur átti fjóra keppendur á mótinu um helgina, en það voru þeir Matthías Helgi Ásgeirsson sem er að hefja sitt fyrsta ár í fullorðinsflokki, þá voru þeir bræður Óskar Valdimar og Torfi Jóhann Sveinssynir mættir til leiks og á sunnudeginum dró Dagur Ýmir Sveinsson fram fjalirnar rifjaði upp gamla takta.
Strákarnir stóðu sig allir með mikillri príði.

Úrslit mótanna er að finna hér.