Fullorðinsflokkurinn á 66°N-cup og SMÍ2026

Tríóið í meistaraflokki Skidalvik 2026
Tríóið í meistaraflokki Skidalvik 2026

Það hefur verið í nógu að snúast hjá meistaraflokk SkíDalvik undanfarið. En síðast liðna viku fór fram 66°N-cup í Hlíðarfjalli,  þar sem keppt var í tveimur svigum og tveimur stórsvigum. Veður og aðstæður settu strik í mótahaldið og því voru mótin keyrð á tveimur dögum í stað þriggja. 

Okkar menn þeir Matthías Helgi, Óskar Valdimar og Torfi Jóhann tóku allir þátt og skiluðu sér vel í þessum mótum. Punktabætingar hjá þeim öllum.

Í dag hófst svo Skíðamót Íslands einnig í Hlíðarfjalli. Upphaflega stóð til að byrja mótið á stórsvigi, en vegna aðstæðna og veðurs var ákveðið að keppt yrði í svigi í dag, 

Okkar menn stóðu sig með prýði og héldu áfram að bæta punktastöðu sína. 

Í fullorðins flokki lenti Torfi Jóhann í 5 sæti, Óskar Valdimar í 8 sæti og Matthías Helgi í 19 sæti. (af íslenskum þátttakendum)

Í flokki 16-17 ára þá sigraði Óskar Valdimar og Matthías Helgi lenti í 6 sæti. (af íslenskum þátttakendum)

Með Íslandsmeistaratitlinum tryggði Óskar Valdimar sér einnig Bikarmeistaratitil SKÍ í flokki 16-17 ára fyrir veturinn 2025/2026.

 

Á morgun laugardag fer svo keppni fram í stórsvigi, áætlað er að hefja keppni kl 10.00, en vegna veðurs eru mótshaldarar  með það opið að seinka keppni þar sem aðstæður gætu orðið erfiðar til mótahalds í bítið. Nánari upplýsingar um mótið er að finna á heimasíðu og Facebooksíðu skíðafélags Akureyrar og á Facebook.

 

Til hamingju með árangurinn strákar og gangi ykkur vel á morgun.

 

Fulla ferð á fjalirnar.