Fyrsta keppnisdegi SMI lokið.

Fyrstu keppni í alpagreinum á Skíðamóti Íslands er lokið. Upphaflega átti að keppa í stórsvigi í dag en því var breytt í svig vegna veðurs. Því verður keppt í stórsvigi á morgun. Þá hefur verið ákveðið að seinka keppni, sem mun hefjast kl 12.00. 

Í kvennaflokki sigraði Hólmfríður Dóra Friðgeirsdóttir, Ármanni eftir spennandi keppni. Að lokinni fyrri ferð var Elín Van Pelt, Víking, í fyrsta sæti og Jóhann Lilja Jónsdóttir, SKÍS, í öðru sæti. Hólmfríður Dóra var í þriðja sætinu en þí einungid 0,57 sekúndu á eftir Elínu. Hólmfríður Dóra átti virkilega góða seinni ferð og náð besta tímanum sem dugði til sigurs. Elín Van Pelt endaði í öðru sæti og Jóhann Lilja Jónsdóttir í því þriðja.

Í karlaflokki sigraði Matthias Kristinsson frá Skíðafélagi Ólafsfjarðar. Matthias var með besta tíman í báðum ferðum og sigraði með 0,75 sekúndna mun. Þess má geta að Matthias er sonur Kristins Björnssonar, sem gerði garðinn frægan í heimsbikar hér á árum áður. Í öðru sæti var Jón Erik Sigurðsson, Fram, og í þriðja sæti var Björn Davíðsson úr Breiðablik.

Elín Elmarsdóttir Van Pelt og Matthias Kristinsson sigruðu í 16-17 ára flokkum og Björn Davíðsson í 18-20 ára flokki drengja, en hjá stúlkunum náði engin að ljúka keppni.

Öll úrslit er hægt að sjá hér í nýja mótakerfinu.

Kvennaflokkur
1. Hólmfríður Dóra Friðgeirsdóttir - ÁRM
2. Elín Elmarsdóttir Van Pelt - VÍK
3. Jóhann Lilja Jónsdóttir - SKÍS

Karlaflokkur
1. Matthias Kristinsson - SÓ
2. Jón Erik Sigurðsson - Fram
3. Björn Davíðsson - BBL

18-20 ára drengir
1. Björn Davíðsson - BBL
2. Gauti Guðmundsson - KR
3. Jón Hákon Garðarsson - BBL

16-17 ára stúlkur
1. Elín Elmarsdóttir Van Pelt - VÍK
2. Jóhanna Lilja Jónsdóttir - SKÍS
3. Signý Sveinbjörnsdóttir - ÍR

16-17 ára drengir
1. Matthias Kristinsson - SÓ
2. Jón Erik Sigurðsson - Fram
3. Stefán Gíslason - ÍR