23.12.2008
Frétt af mbl.is.Jakob Helgi Bjarnason, 13 ára skíðamaður frá Skíðafélagi Dalvíkur náði frábærum árangri á Förjuls Cupen í Geilo í Noregi um síðustu helgi þar sem 46 skíðamenn voru skráðir til leiks í hans flokki. Jakob keppir á yngra ári í 13-14 ára flokki og atti kappi við alla bestu skíðamenn Noregs í þessum aldursflokki.
Jakob hafnaði í 3.sæti í stórsvigi eftir að hafa verið með 2 besta tímann eftir fyrri ferð. Í svigi keyrði hann út úr brautinni og var dæmdur úr leik. Í risasvigi varð Jakob í 2.sæti aðeins 2/100 hlutum úr sekúndu á eftir Henrik Kristofferssen sem hefur verið yfirburðaskíðamaður í Noregi í sínum flokki síðustu árin.