06.09.2010
Skíðafélag Dalvíkur hefur ákveðið að hefja haustæfingar fyrir 10-12 ára (Börn fædd 98,99,00) ef áhugi er fyrir hendi og næg þátttaka fæst. Fyrirhugaðar eru tvær æfingar á viku í íþróttahúsinu á mánudögum og miðvikudögum milli kl 17-18 undir stjórn Hörpu Rutar Íþróttafræðings og einn af þjálfurum félagsins.
Æfingargjald verður 7500 krónur (æfingatímabil frá 13. sept-1.des).
Endilega látið vita sem allra fyrst hvort þið hafið áhuga og tilkynnið þátttöku fyrir föstudaginn 10. September á netfangið hrh28@hi.is eða í síma 8663464 eftir kl 16:00.