Jónsmót 2005.

MINNINGARMÓT UM JÓN BJARNASON 13. OG 14. MARS 2005. Skíðafélag Dalvíkur boðar til árlegs skíðamóts með sundívafi sem haldið er til minningar um Jón Bjarnason sem var einn af stofnendum félagsins. Mótið fer fram dagana 12. og 13. mars n.k. Mótið er ætlað 9 til 12 ára (4.-7.bekkur) börnum alls staðar af landinu. Keppni fyrir 11-12 ára er að hluta til með óhefðbundnu sniði, keppt verður í stórsvigi (hefðbundið) 50 metra bringusundi og svigi (hefðbundið). Vegleg verðlaun verða veitt fyrir hverja grein í hvorum aldursflokki og einnig verða verðlaun fyrir tvíkeppni, stórsvig/sund (betri ferð í stórsvigi gildir) Keppni fyrir 9-10 ára er með hefðbundnu sniði svig, stórsvig. Verðlaun verða fyrir báða aldurflokka stelpur, strákar. Á laugardagskvöldinu verður kvöldvaka. Keppendur frá öllum héruðum eru beðin um að koma með skemmtiatriði má vera samkvæmisleikur, stuttir leikþættir, brandarar, söngur eða það sem ykkur dettur í hug. Keppnisgjald er 1500 kr. pr. keppanda. Þetta er í níunda skipti sem minningarmót um Jón Bjarnason er haldið en það hefur tekist mjög vel og vakið mikla hrifningu þeirra sem hingað hafa komið og tekið þátt. Það er von okkar að nú takist vel til sem áður og að mótið verði skemmtilegur árlegur viðburður sem börn á þessum aldri hlakka til að taka þátt í. Við vonum að sem flestir sjái sér fært að mæta og eigi hér á Dalvík góða og skemmtilega helgi. DRÖG AÐ DAGSKRÁ Laugardagur 13. mars: Kl. 10: 00 - Start - stórsvig Kl. 13: 00 - Start - sund í Sundlaug Dalvíkur (farastjórahóf að lokinni keppni) Kl. 20.00 Kvölavaka. Sunnudagur 14. mars: Kl. 10: 00 - Start - svig Verðlaunaafhending og mótsslit að lokinni keppni á sunnudag. Ath. betri ferð í stórsvigi gildir í tvíkeppninni sund/stórsvig. Mótshaldarar áskilja sér rétt til breytinga á dagskrá ef þörf krefur. ÞÁTTTÖKUTILKYNNINGAR ÞURFA AÐ BERAST Í SÍÐASTA LAGI MIÐVIKUDAGINN 9. MARS MEÐ TÖLVUPÓSTI Á NETFANG: skidalvik@skidalvik.is johannbjarna@simnet.is EÐA Í FAX 4661096. EINNIG TEKUR JÓHANN BJARNASON VIÐ SKRÁNINGUM Í SÍMA 8663467 Frekari upplýsingar fram að móti gefur Jóhann Bjarnason í síma 466-1478 eða í gsm: 866-3467. Upplýsingar um gistingu eru gefnar í síma 466-1010.