Jónsmót í þriðju tilraun.

Flottar aðstæður á föstudaginn langa þegar stórsvigið fór fram.
Flottar aðstæður á föstudaginn langa þegar stórsvigið fór fram.

Í byrjun páska tókst loksins í þriðju tilraun að halda Jónsmótið okkar. Blásið var í lúðrana miðvikudaginn 1.apríl þegar keppendur og fylgdarlið mætti í sundlaug Dalvíkur.

Á skírdag hófst svo keppni í svigi hjá 11-13 ára hópnum í fínasta veðri. Á meðan keppni stóð, breyttust aðstæður heldur betur og á endanum var ákveðið að klára fyrri ferð og láta þar við setið. Svigmóti hjá 9-10 ára var frestað um tvo tíma og voru þau að ljúka keppni um 17.00.

Á föstudaginn langa var svo stórsvig hjá öllum aldurshópum, aðstæður voru mjög góðar til mótahalds, logn, bjart og -3°C. Keppni í öllum flokkum var lokið upp úr hádegi og fengu keppendur og áhangendur súkkulaði og kringlur áður en heim var haldið.

 

Jónsmótið varð 30 ára í ár og við það tilefni var Björgvin Hjörleifsson hugmyndasmiður mótsins heiðraður. Takk fyrir þitt framlag Björgvin.

 

Þökkum öllum þátttakendum og áhangendum fyrir komuna.

 

Sjáumst að ári. 

Björgvin Hjörleifsson heiðraður.

Mjög krefjandi aðstæður sköpuðust í svigi 11-13 ára. En krakkarnir stóðu sig eins og hetjur.

Jónsmót er ekki haldið nema með frábæru starfsfólki sem stóð vaktina í ár eins og sl. 30 ár.

Skíðafélag Akureyrar fékk Jóhannsbikarinn í ár - Tilhamingju.

Mótinu lauk á föstudaginn langa á stórsvigi við mjög góðar aðstæður.

Þátttakendur fengu svo mótsgjöf, súkkulaði og kringlur að lokinni keppni á sunnudag.