Jónsmót um komandi helgi.

Mótanefnd var að ljúka fundi og það er nánast allt á plani! Það eru búinn að vera hlýindi á okkur en svæðisstarfsmenn eiga snjó upp í erminni sem þeir munu nota til að teppaleggja eins vel og hægt er áður en mótið hefst. Plan A er að keyra sambærileg brautarstæði og á fyrri Jónsmótum, plan B og C er að stytta brautir og hugsanlega fara í afbrigði eins tvær stuttar stórsvigsferðir í stað einnar og jafnvel þrjár ferðir í svigi og tvær bestu gilda. Skilaboðin frá okkur er skýr, við höldum mótið og gerum það besta úr því þannig að krakkarnir fái skemmtilega upplifun í Böggvisstaðarfjalli.
Veðurhorfur fyrir helgina eru góðar. Komið fagnandi!
 
Hægt er að sjá helstu upplýsingar um mótið í flipanum hér uppi til hægri á síðunni.