Landslagsmótun á skíðasvæðinu.

Landslagsmótun á skíðasvæðinu.
Á miðvikudaginn næsta þann 6. júlí klukkan 16:30 munum við bjóða félagsmönnum og öðrum áhugasömum í gönguferð um Barnabrekkuna að skoða framkvæmdasvæðið sem unnið verður við í enda júlí. Það stendur til að minnka hólana og þar með búa til mikið betra svæði fyrir byrjendur á skíðum. Endilega komið og skoðið hvað stendur til.

Svo í næstu viku stefnum við á að halda opinn íbúafund í Bergi og kynna helstu plön og opna á umræður um verkefnið.
 
Kv. Hörður Finnbogason fyrir hönd Skíðafélags Dalvíkur.