Mánudaginn 11. maí var haldið lokahóf hjá Skíðafélaginu og var mikil gleði ráðandi hjá krökkunum og foreldrum.
Haldið var happdrætti með veglegum vinningum og grillaðar pylsur auk þess sem veittar voru viðurkenningar
og verðlaun voru veitt fyrir Firmakeppnina sem Barri Björgvins vann fyrir hönd Príði & Hárverkstæðið.
Skíðafélagið er ákaflega stolt með árangur vetrarins, bæði þjálfarar og iðkendur félagsins stóðu
sig mjög vel í vetur og uppskeran eftir því. En Skíðafélag Dalvíkur var með flest verðlaun allra
skíðafélaga á Andrésar Andarleikunum sem voru þeir stærstu sem haldnir hafa verið.
Við göngum stolt inn í sumarið og hlökkum til næsta veturs að taka á móti krökkunum og njóta
þess að renna okkur á brettum og skíðum og hafa gaman.
Látum myndirnar tala sínu máli.






