Óhefðbundin helgi framundan. Núna helgina 13-15 febrúar verður ýmislegt í gangi, helst er að nefna að það verður FIS snjóbrettamót á Dalvík. Keppt verður í Rails og verða um 40 keppendur á mótinu.
Keppt verður milli 09:00 og 13:00 laugardag og sunnudag.
Hvetjum við fólk að fjölmenna og styðja okkar frábæru keppendur.
En samhliða því verður lokað almenning því við ætlum að nýta þá veglegu gjöf sem við höfum fengið frá almenningi og fyrirtækjum og framleiða snjó í Neðri Lyftubrekkunni. Snjóbyssurnar verða staðsettar í miðri brekku og því ekki hægt að hafa opið á meðan framleiðslan er í gangi, sett verður í gang eftir lokun á morgunn föstudaginn 13. og við hættum að framleiða aðfaranótt þriðjudags, en opið verður í Barnabrekkunni á mánudaginn.
Stefnum á að opna aftur með hefðbundina opnun á þriðjudaginn 17. febrúar.