Þá eru skólafríin að skella á og lengjum við því opnunina hjá okkur.
frá og með miðvikudeginum 18. febrúar og út mánuðinn opnum við því klukkan 10:00 alla daga.
Enn sem komið er vantar okkur snjó í efri lyftuna en aðstæður í Neðri Lyftubrekku og Barnabrekku eru orðnar mjög góðar og frá og með morgundeginum verður Neðri Lyftubrekkan komin í nánast fulla breidd, ásamt því að talsvert er af railum og boxum í Barnabrekkunni.
Svo er alltaf stemmning á nýja útisvæðinu og nóg til af leigubúnaði í leigunni. Heitt kakó og með því í sjoppunni.
Verið velkominn á skíði og bretti til okkar hingað á Dalvík.