SKÍÐADISKÓ

Föstudaginn 4. febrúar frá kl. 18:00-20:30 verður opið í fjallinu fyrir alla æfingakrakka hjá Skíðafélagi Dalvíkur og fjölskyldur þeirra. Frítt verður í lyfturnar og boðið verður upp á kakó og kökur. Við hvetjum alla til að mæta og skemmta sér saman á skíðum í dúndrandi tónlist. Foreldrafélag Skíðafélags Dalvíkur.