Skíðamót Íslands 2006. Undirbúningur gengur mjög vel.

Skíðamót Íslands fer fram dagana 23. til 26. mars 2006 á Ólafsfirði og Dalvík á 60 ára afmælisári Skíðasambands Íslands. Einhverjum kann að finnast þessar dagsetningar í fyrri kantinum en reynsla okkar af að halda stór skíðamót mikið seinna er ekki sérlega góð. Bendum við á að árið 2002 héldum við Skíðamót Íslands dagana 4. til 7. apríl við frekar erfiðar aðstæður. Alpagreinarnar fóru allar fram á Dalvík vegna þess að mjög snjólétt var orðið á Ólafsfirði og ekki keppnisfært. Norrænugreinarnar fóru fram á Ólafsfirði og þurfti að keyra snjó í brautirnar með ærnum kostnaði til þess að gangan gæti farið fram. Með þessum dagsetningum viljum við freista þess að Skíðamót Íslands geti farið fram við betri aðstæður en árið 2002 og að hægt verði að keppa í báðum greinum á stöðunum tveimur. Undirbúningur mótsins gengur vel og höfum við tryggt okkur fjóra aðalstyrktaraðila en þeir eru Sparisjóðirnir á Ólafsfirði og á Dalvík, RARIK, KEA og Samskip. Þessir aðilar koma allir mjög myndarlega að mótinu. Annar undirbúningur stendur nú sem hæst og mun meðal annars verða sérstök heimasíða fyrir mótið sem verður opnuð innan tíðar. Við komum til með að senda frá okkur upplýsingar um fyrirkomulag mótsins jafnóðum og þær liggja fyrir. Í mótskránni sem verður gefin út fyrir mótið ætlum við að skrá alla keppendur og þurfum því að fá skráningar snemma, en nánar um það síðar. Það er von okkar að hér verði haldið gott landsmót og að sem flest félög verði í gistingu á stöðunum tveimur á meðan mótið fer fram. Eftirtaldir aðilar eru í mótsstjórn SMI 2006 Óskar Óskarsson mótsstjóri, Jón Konráðsson, Bjarni Valdimarsson, Björn Þór Ólafsson, Elsa Benjamínsdóttir, Brynjólfur Sveinsson, Guðbjörn Gíslason, Jóhann Bjarnason, K.Haraldur Gunnlaugsson, Gunnlaugur Haraldsson, Óskar Sigurbjörnsson Dagskrá mótsins. Fimmtudagur 23.mars. Kl. 17:00 Sprettganga Kl. 20:00 Mótssetning. Föstudagur 24. mars. Kl. 10:00 Stórsvig kvenna Kl. 10:45 Stórsvig karla Kl. 12:15 Stórsvig kvenna Kl. 13:00 Stórsvig karla Kl. 14:00 Ganga hefðbundin aðferð. Konur 5 km, piltar 17-19 ára 10 km, karlar 15 km. Laugardagur 25. mars. Kl. 10:00 Stórsvig kvenna Kl. 10:45 Stórsvig karla Kl. 12:15 Stórsvig kvenna Kl. 13:00 Stórsvig karla Kl. 14:00 Ganga frjáls aðferð. Konur 5 km, piltar 17-19 ára 10 km, karlar 10 km. Sunnudagur 26. mars Kl. 10:00 Svig karla Kl. 11:00 Svig kvenna Kl. 12:30 Svig karla Kl. 13:15 Svig kvenna Kl. 14:00 Boðganga karla og kvenna, H,H,F. Kl. 17:00 Verðlaunaafhending og hóf. Mótshaldarar áskilja sér rétt til breytinga á dgaskrá. Kveðja. Skíðafélögin á Dalvík og á Ólafsfirði.