
Skýrsla stjórnar 2024-2025
Aðalfundur Skíðafélags Dalvíkur var haldinn í Menningarhúsinu Bergi þann 27.maí 2024.
Stjórn:
Stjórn félagsins var skipuð eftirtöldum aðilum:
Óskar Óskarsson var ekki í kjöri en er á seinna ári sem formaður.
Hanna Kristín Gunnarsdóttir var ekki í kjöri en er á seinna ári sem ritari.
Sigurður Kristinn Guðmundsson var ekki í kjöri en er á seinna ári sem meðstjórnandi
Elísa Rán Ingvarsdóttir var kjörin sem gjaldkeri til tveggja ára.
Sigtryggur Hilmarsson var kjörin sem varaformaður til tveggja ára.
Guðni Berg Einarsson bauð sig einnig fram í stjórn.
Fastanefndir:
Í fastanefndum sátu þessir:
Alpagreinanefnd: Skafti Brynjólfsson og Snæþór Arnþórsson.
Foreldrafélag: Lára Bettý Harðardóttir, Katla Ketilsdóttir,
Guðrún Anna Óskarsdóttir,Sunna Björk Bragadóttir og Fanney Davíðsdóttir
Brettanefnd: Viktor Jörgensen, Fanney Davíðsdóttir og
Petra Breiðfjörð
Mótanefndir: Mótanefndir eru tvær. Önnur fer með heimamótin og Jónsmót og í henni eru Daði Valdimarsson, Snæþór Arnþórsson, Hildur Birna Jónsdóttir, Kristján Þorvaldsson og Sveinn Torfason. Hin mótanefndin sér um stærra mótahald, FIS og bikarmót. Í henni eru Sveinn Brynjólfsson, Sveinn Torfason, Bjarni Valdimarsson, Skafti Brynjólfsson og Óskar Óskarsson. Eins og áður vinna nefndirnar sameiginlega að mótahaldinu.
Skoðunarmenn reikninga: Þorsteinn Skaftason og Brynjólfur Sveinsson
Stjórnun félagsins/framkvæmdarstjóri.
Stjórn fundaði 16 sinnum frá síðasta aðalfundi. Það sem af er ári hefur stjórn fundað 8 sinnum. Hörður framkvæmdarstjór hefur mætt á flesta stjórnarfundi starfsársins vegna mikilla framkvæmda og fjárfestinga á árinu.
Verkefni stjórnar og félagsins á milli aðalfunda.
Það lá fyrir eftir aðalfundinn vorið 2024 að stærsta framkvæmdaár félagsins í mörg ár væri framundan. Viðhald og endurbætur á búnaði lágu fyrir sem ekki var hægt að komast hjá. Stærsta verkefnið var hins vegar bygging nýs aðstöðuhúss sunnan Brekkusels. Mikil vinna fór í það verkefni samhliða öðrum verkefnum stjórnar og framkvæmdastjóra. Nýr samningur við félagið var einnig til umræðu í stjórn en hann var undirritaður síðla árs og er í gildi út árið 2028. Við töldum samninginn viðunandi á þeim tíma sem hann var í umræðu í stjórn en því miður hafa hækkannir á öllum aðdrætti og launaskrið sett strik í reikninginn sem stjórn og framkvæmdastjóri hafa verið að vinna í síðustu vikur.
Viðhald og endurbætur:
Langstærsta viðhaldsverkefni sumarsins var að mála neðri lyftuna sem hafði verið frestað í allt of mörg ár. Aðalástæðan fyrir því hefur verið kostnaðurinn og að verkið og ekki fyrir nema að lágmarki tvo starfsmenn. Við ákváðum því að ráða einn af starfsmönnunum sem var í vinnu hjá félaginu um veturinn áfram út sumarið og til loka vertíðar nú í vor í ýmis verkefni, þó aðallega í að mála lyftuna. Fenginn var starfsmaður frá Vinnumálastofnun. Sumarið var ekki sérstakt til málningarvinnu en með ótrúlegri seiglu tókst að klára að mála lyftuna. Slippfélagið gaf alla málningu á lyftumöstrin sem var vel á aðra milljón kr. Töluverður kostnaður varð við að bæta við starfsmanni í 7 mánuði en hjá því var ekki komist. Hins vegar er hagstætt að fá starfsmenn frá Vinnumálastofnun sem við komum til með að nýta áfram. Þessir starfsmenn unnu síðan önnur tilfallandi viðhaldsverk á svæðinu ásamt framkvæmdastjóra sem var þó að mestu að undirbúa byggingu aðstöðuhússins. Efra lyftuhjólið í efri lyftunni var tekið niður áður en snjóa leysti og var ástaðan sú að skipta þurfti um legur í því. Síðan kom í ljós að það þurfti að sandblása það og mála og var það gert í Slippnum á Akureyri og eins og oft áður á hagstæðum kjörum. Hjólið var síðan sett upp í janúar sl.
Uppbygging, framkvæmdir og verkefni framundan:
Eins og fram hefur komið hér að framan þá hófst á síðasta ári bygging aðstöðuhúss á svæðinu. Mjög stórt verkefni og mikil áskorun fyrir stjórn og framkvæmdastjóra og mikill kostnaður fyrir ekki stærra félag en Skíðafélag Dalvíkur. Fyrir lá að Dalvíkurbyggð setti rúmar 150.000.000 króna í húsið til ársins 2026. Kostnaðaráætlun var rúmar 188.000.000 kr. Frá upphafi var rætt í stjórn félagsins að framlag félagsins gæti orðið um 10% eða um 19.000.000 sem við sáum vel yfirstíganlegt og síðan yrði VSK frumvarp nýtt sem átti að gera félugum kleift að fá vsk endurgreiddan af vinnu á verkstað. Áætlanir okkar gerðu ráð fyrir amk 15.000.000 kr í formi endurgreiðslu vsk en nú er útséð að ekki verður af því. Galli á frumvarpinu gerir það ómögulegt að fá vsk endurgreiddan þar sem sveitarfélag leggur fram framkvæmdafé til verksins. Frumvarpið gerir ráð fyrir að félög framkvæmi fyrir sjálfsaflafé en ekki framlög frá opinberum aðilum. Með framlagi félagsins og endurgreiðslu á vsk var nánsat búið að fjármagna bygginguna. Í dag er staðan sú að framkvæmdir hafa farið uþb 15% fram úr áætlun og eru þar 2-3 verkliðir sem vega þyngst þar. Unnið er að því að finna leiðir til að gera húsið nothæft fyrir næsta vetur og klára það síðan á árinu 2026. Rétt er að geta þess að stjórn og framkvæmdastjóra hefur hingað til tekist að fá styrki og framlög í húsið fyrir 29.000.000 kr eða um15% af byggingakostnaði sem er í raun ótrúlegt. Þeir sem hafa staðið hvað fastast við bakið á félaginu eru fyrirtæki á Dalvík og víðar. Bæði er um að ræða bein peningaframlög, hagstæðir samningar við verktaka og birgja, og gefins vinna á verkstað. Þá hefur talsverð sjálfboðavinna verið unnin og á eftir að aukast þegar verkefnin léttast. Til þess að halla ekki á neinn þá viljum við bíða með það að sinni að segja frá þessum velunnurum félagsins. Þeir eru margir og eftir á að taka saman þennan góða hóp sem eflaust eiga eftir að hjálpa okkur áfram á einhverjum nótum.
Og meira að fjárfestingum. Í byrjun september sendi félagið erindi á Dalvíkurbyggð vegna troðaramála. Okkur fannst ekki vera hjá því komist að láta vita af tilboði sem ekki var hægt að horfa framhjá. Þannig var að veturinn 2023 voru fluttir inn tveir notaðir snjótroðar sömu gerðar og við höfum rætt um að kaupa þegar kæmi að endurnýjun á okkar troðara. Þessir troðarar voru fluttir inn af Pistenbully fyrirtækinu og leigðir til drykkjarframleiðandans Red Bull til að smíða heimsmets stökkpall í Hlíðarfjalli.
Við vissum að nýr sambærilegur troðari kostaði um 125-130 milljónir hingað kominn með sköttum og gjöldum. Notaðir en verksmiðju uppteknir slíkir troðarar keyrðir um 6000 tíma kosta sirka 75 milljónir. Troðarinn sem við höfðum augastað á var notaður 8000 tíma og því talsvert notaður en fékk verulega yfirhalningu í 7000 tímum og því í mjög góðu standi og var verðmiðinn á honum 38 milljónir kr sem er töluvert undir markaðsverði troðara á þessu róli hingað til lands kominn. Við höfum síðan verið í samtali við seljendur með nokkra hluti sem unnið er í að laga, sumu lokið en annað í vinnslu. Troðarinn sem við eigum fyrir er árgerð 2006 og keyrður um tæpa 11.000 tíma en í mjög góðu standi miðað við aldur og fyrri störf en er kominn á þann stað að lítið þarf út af að bregða svo að hann stoppi.
Sveitastjórn Dalvíkurbyggðar tók vel í erindið og styrkti kaupin og troðarinn kom til Dalvíkur á haustdögum. Það var mikil bylting að fá þennan troðara á svæðið sem auðveldar alla vinnslu á brekkum til mikilla muna og sparar tíma í troðslu og skilar betri áferð á brekkunum. Þar sem þetta er spilbíll þurfti að setja niður spilfestur upp í efri lyftubrekku og Skálabrekku og verður fleirum bætt við í framtíðinni. Stjórn þakkar Dalvíkurbyggð fyrir stjót viðbrögð og að taka ákvörðun um að kaupa troðarann.
Skíðavertíðin 2024-2025
Það þarf ekki að fara mörgum orðum um það að nýliðinn vetur er sá erfiðasti í mörg ár. Risjótt veður og tíðarfar gerði okkur erfitt fyrir að halda svæðinu í því standi sem vant er og þannig var það víða á skíðasvæðum landsins. Um miðjan nóvember kom ágætur frostakafli í rúma viku en stjórn ákvað í samráði við Hörð framkvæmdastjóra að sleppa snjóframleiðslu í þeim frostakafla. Aðal ástæðurnar voru tvær en það var lítið fjármagn var til og síðan var bygging aðstöðu hússins á fullu og aðstæður neðst á svæðinu erfiðar og starfsmenn á fullu í öðrum verkefnum. Eins og eðlilegt er þá voru misjafnar skoðanir á þessari ákvörðun. Snjóframleiðsla hófst síðan upp úr miðjum desember og stóð yfir með smá hléum fram að jólum og var framleitt í 9 sólarhringa í vetur. Aftur var sett í gang 29. desember og fram að áramótum. Stefnan var síðan sú að síðasti framleiðslu kaflinn yrði í nokkra daga frá 7. Janúar en vegna lélegra snjóalaga var framleitt í tvo daga í lok mars. Það lengdi vertíðina um nokkra daga en við réðum einfaldlega ekki við náttúruöflin frekar en fyrri daginn og var svæðinu lokað fyrir almenning 15. mars. Það tókst samt sem áður að halda úti æfingum hjá eldri flokkum fram til 20. apríl en þá var sjálf hætt. Með þessar erfiðu aðstæður áttum við mjög erfitt með að halda gönguspori úti en gerðum þó allt til þess að það gæti gengið.
Opnunar dagar í vetur voru 65 fyrir almenning en opið var fyrir æfingar eða til 20. apríl
Gestir svæðisins voru tæplega 4.420 sem var langt undir væntingum.
Tekjur á vertíðinni:
Skidata 7.481.759
Sjoppa 409.000
Hópar utan skidata 1.462.500
Samtals 9.353.259 krónur
Tekjur af hverjum gesti í vetur voru því 2.116 kr. sem er 306 kr. hærra en á síðasta ári sem er mjög jákvæð þróun.
Hér má sjá hvernig málin þróuðust í vetur:
-
15. des, snjóframleiðsla hefst og framleitt var í 9 sólarhringa í vetur.
-
4. janúar, var neðri lyftan opnuð.
-
24. janúar, var efri lyfta opnuð.
-
26. des var fyrsta göngusporið gert með sleða.
-
Viðburðir á vegum svæðis.
-
Byrjendanámskeið fyrir börnin.
-
Æfingabúðir. Hæfileikamótun SKÍ á snjóbrettum í janúar sem tókust mjög vel.
-
Síðasti opnunardagur fyrir almenning var 15. mars.
-
Opið fyrir æfingar hjá elsta hópnum fram undir Andrés, almenningur gat farið á skíði en engin þjónusta.
-
Hörður Finnbogason er framkvæmdarstjóri félagsins en auk hans unnu á svæðinu Júlíus Gunnar Bóasson svæðisstjóri, Steinþór Wendel, Jón Wendel, tók við af Reyni sem fór til framkvæmdamiðstöðvar Dalvíkurbyggðar, Yoann Mck Jónas Þór Leifsson og Reynir Magnússon. Afleysingafólk var síðan um helgar eftir þörfum.
Þjálfun og skíðakennsla.
Hér að neðan fara þjálfarar að venju yfir veturinn. Áður hefur komið fram í skýrslunni að snjóleysið gerði okkur erfitt fyrir í vetur. Æfingar hófust í janúar, bæði í alpagreinum og á brettum en lauk í lok mars vegna snjóleysis sem var tæpum mánuði fyrir Andres. Þátttaka á æfingum var að venju góð og tóku 128 þátt í kennslu og æfingum í vetur. Þjálfarar hjá félaginu í alpagreinum og á brettum í vetur voru: Sveinn Torfason og Dagur Sveinsson honum til aðstoðar, Ján Hlavaj, Íssól Jökulsdóttir, Harpa Rut Heimisdóttir og Vincent Drost var brettaþjálfari. Þá komu sjálfboðaliðar við sögu hjá elsta hópnum og þar voru Skafti Brynjólfsson og Björgvin Björgvinsson fremstir í flokki. Aðstoðarfólk í yngstu hópunum aðstoðuðu þjálfara eftir þörfum. Stjórn þakkar þeim fyrir vel unnin störf í vetur.
Mót og aðrir viðburðir 2025
Lítið gekk upp í mótahaldi í vetur. Okkur tókst að halda eitt FIS ENL mót dagana 18.-19. janúar sem átti í fyrstu að fara fram í Hlíðarfjalli en var fært í Bláfjöll en á hvorugum staðnum voru aðstæður til mótahalds. Keppt var í tveimur svigum í Böggvisstaðafjalli en ekki voru aðstæður til þess að keyra stórsvig. Í upphafi vetrar stóð til að halda eitt ENL mót í byrjun febrúar og eitt mót í flokki 12-15 ára um miðjan mars en ekkert var af því vegna lélegra aðstæðna. Hæfileikamótun SKI á brettum var hjá okkur í febrúar við ágætar aðstæður og tókst vel til.
Jónsmótið fór fram dagana 21. -23. mars. Það var ljóst skömmu fyrir mót að það yrði ekki haldið í Böggvisstaðafjalli vegna aðstæðna. Því var brugðið á það ráð að leita til Siglfirðinga sem tóku vel í erindið og fór alpagreinahlutinn fram í Skarðsdal. Sundið var á sínum stað í sundlauginni á Dalvík. Allt gekk þetta upp allir fóru sáttir heim af mótinu. Um 180 keppendur tóku þátt í mótinu. Á næsta ári verður Jónsmótið 30 ára.
Dalvíkurmótið féll niður þetta árð.
Lokahóf: Lokahófið hefur ekki farið fram þegar þetta er skrifað.
Hefðbundnir fundir og ráðstefnur síðasta ár:
Félagið tók þátt í eftirfarandi fundum og viðburðum: Haustfundur Samtaka skíðasvæða, Skíðaþing, formannafundur UMSE, Ársþing UMSE, vorfundur íþrótta- og æskulýðsráðs og fundir sem tengjast rekstrinum og uppbyggingu þess. Þá fóru tveir fulltrúar á sýninguna Interalpin í Austurriki í byrjun maí. Ferðin var vel heppnuð og margt að sjá í þróun tóla og tækja tengdum skíðasvæðum. Mikilvægt er að fylgjast með því hvað er að gerast í þessum bransa og því er nauðsynlegt að fara á þessa sýningu.
Fastanefndir félagsins og verkefni sem eru árleg:
Foreldrafélagið, alpagreinanefnd, brettanefnd og mótanefnd störfuðu vel að vanda.
Eins og undanfarin ár sá alpagreinanefnd um ráðningu þjálfara í samvinnu við stjórn og framkvæmdastjóra og uppsetningu æfingatöflu og umgjörð æfinga í vetur.
Samantekt þjálfara veturinn 2024-2025
Leiktími
Fjöldi haldinna æfinga: 19
Aflýstar æfingar: 11
Heildarfjöldi nemenda: 21
Meðalmæting: 11
Framvinda vetrarins
• Í lok tímabilsins hafði næstum öllum hópnum tekist að komast upp í fyrstu lyftuna.
• Börnin lærðu að skíða í ýmsum aðstæðum, þó að mestur hluti tímabilsins hafi farið í að skíða á blautum og krefjandi snjó.
• Þau þróuðu samvinnu með því að skíða saman tvö og tvö og hjálpa til við að taka niður skíðabrautina.
• Hópurinn æfði sig á skíðum í skemmtilegum brautum, sem hjálpaði til við að byggja upp sjálfstraust og grunnfærni.
• Þau bættu hreyfigetu sína á skíðum með æfingum eins og að beygja sig, stökkva og lyfta einu skíði.
• Þau byrjuðu að læra að stjórna hraða sínum; þó þau eigi enn í erfiðleikum með að lesa landslag og aðlaga hraðann í samræmi við það, þá náðust framfarir.
• Þeim var kennt að haga sér á ábyrgan hátt á skíðasvæðinu:
o Að hægja á sér nálægt lyftunni
o Að sveifla sér ekki í lyftunni
o Að sleppa lyftunni undir vírnum
o Að vera meðvituð um annað fólk í brekkunni
• Á hverri æfingu hjálpuðu að minnsta kosti tveir eldri nemendur við æfingarnar. Þau tóku framförum í að vinna með yngri börnum, byggja brautir og læra grunnþjálfunarfærni.
Leikir og afþreying
• Í gegnum tímabilið spiluðum við leiki til að þróa skíðafærni og liðsanda, þar á meðal:
o Dimmalimm
o Fylgdu leiðtoganum
o Dýraleikur
o Kappakstursleikur
Páskaeggjaleit
Þegar skíðasvæðið var lokað um páskana skipulögðum við skemmtilega eggjaleit í skóginum og í kringum Brekkusel, sem hélt hópnum virkum og áhugasömum.
Jákvæð atriði
• Eldri nemendur tóku virkan þátt í að aðstoða við æfingar og fengu verðmæta reynslu sem gæti stuðlað að því að byggja upp framtíðar þjálfara.
• Mikill áhugi og hvatning var meðal barnanna sem mættu reglulega á æfingar.
• Okkur tókst að halda eins margar æfingar og mögulegt var, jafnvel þegar skíðasvæðið var lokað fyrir almenning.
Áskoranir
• Mörgum æfingum þurfti að aflýsa vegna slæms veðurs og snjókomu.
• Það voru mjög fáar æfingar með lélega mætingu, það var helst vegna lélegra snjó aðstæðna.
Ján Hlavaj
Vetrarskýrsla– 1. og 2. bekkur
Fjöldi haldinna æfinga: 19
Æfingar á Akureyri: 1 (16 þátttakendur)
Aflýstar æfingar: 10
Heildarfjöldi þátttakenda: 29
Meðalmæting: 17
Framfarir og þróun
• Hópurinn byrjaði að nota stórsvigs hlið og í litlum stórsvigs brautum
• Við einbeittum okkur að því að koma krökkunum úr “pizzu” stöðu yfir í venjulega skíða stöðu.
• Þátttakendur lærðu að skíða við ýmsar aðstæður og urðu meðvitaðri um umhverfið í fjallinu.
• Þeim var kennt rétt hegðun á skíðasvæðinu, svo sem:
• Að hægja á sér þegar farið er að lyftunni
• Að sveiflast ekki í lyftunni
• Að sleppa lyftunni undir vírnum
• Að vera meðvituð um aðra í brekkunni
• Börnin lærðu samvinnu með því að skíða saman tvö og tvö og hjálpa til við að taka niður skíðabrautina.
• Við kynntum fyrir þeim hvernig keppnir virka og fengu þau að prufa að fara í gegn um starthlið og að kynnast því.
• Þegar aðstæður leyfðu, fórum við í frjálsar ferðir frá topp í neðri lyftu. Krakkarnir æfðu sig í að stjórna skíðunum sínum í mismunandi færi.
• Við notuðum skemmtilega leiki til að bæta liðsandann, hreyfigetu og skíðatækni, þar á meðal:
• Dimmalim, Fylgdu leiðtoganum
• Stökk, lyfta einu skíði, skíða á ytra skíðinu
• Skíða með stafi fyrir framan líkamann
• Hraðar beygjur
• Páskaeggjaleitarleikur
Keppni
• Andrés Önd: 16 þátttakendur
Jákvæð atriði
• Svona stór hópur skapaði skemmtilega og hvetjandi stemningu fyrir krakkana
• Jafnvel þegar skíðasvæðið var lokað fyrir almenning gátum við samt haldið æfingar þegar aðstæður leyfðu.
Áskoranir
• Það var stundum erfitt að stjórna svona stórum hópi bara með 2 þjálfara.
• Vegna snjóleysis var erfitt að komast lengra upp fjallið til þess að kynna nýjar aðstæður og það var ekki hægt að sleppa lyftunni nálægt 5. mastri
Þjálfarar Íssól og Ján Hlavaj
Vetrarskýrsla– 3. og 4. bekkur
Fjöldi æfinga: 35
Æfingar á Akureyri: 1 (17 þátttakendur)
Aflýstar æfingar: 10
Heildarfjöldi þátttakenda: 26
Meðalmæting: 14
Framfarir og þróun
• Krakkarnir lærðu að hreyfa líkama sinn upp og niður í beygjum (gorma), með áherslu á að pressa í ytra skíðið og að vera virk í beygjum.
• Mikilvægar framfarir urðu í skíðaiðkun bæði stórsvigi og svigi, sérstaklega í “carving” tækni.
• Við nýttum okkur vel efri lyftuna bæði fyrir frjálsa skíðaiðkun og brautir, og færðum okkur smám saman yfir í brattari brekkur.
• Krakkarnir æfðu við mismunandi aðstæður á mismunandi stöðum á fjallinu, öðluðust reynslu.
• Við notuðum venjulegar stangir og stubba á æfingum.
• Krakkarnir lærðu að nota start hlið áður en við fórum á Jónsmót og Andrés.
Keppnir
• Jónsmót: 3 þátttakendur
• Andrés Önd: 17 þátttakendur
Jákvæð atriði
• Þrátt fyrir erfiðar æðstæður í vetur tókst okkur að halda töluverðan fjölda æfinga.
• Við gátum einnig æft, jafnvel þegar skíðasvæðið var lokað fyrir almenning, sem gaf okkur dýrmætan tíma í brekkunum.
Áskoranir
• Mikill getumunur var á milli krakkanna sem gerði okkur það stundum erfitt að skipta upp hópnum.
Íssól og Ján Hlavaj
Samantekt á vetrinum 2025
Hópur 10 og 11 ára



Skipulagðar æfingar hófust svo samkvæmt æfingatöflu 3. janúar að mig minnir. Æfingakerfið Sportabler var notað til upplýsinga um skipulag æfinga og samskipti við foreldra. Ég kem inn í þjálfun þessa hóps um miðjan janúar þegar ljóst var að erfitt væri að manna þjálfara með Ján fyrir þennan aldurshóp.
Samstarf þjálfara og annarra starfsmanna svæðisins var mjög gott sem endra nær og lögðu allir sitt að mörkum til að gera það besta úr hlutunum hverju sinni. Veturinn var heilt yfir strembinn og aðstæður á svæðinu snjóalega séð af skornum skammti þegar leið á veturinn, sérstaklega utan brauta.
Skipulagðar æfingar byrjuðu eins og fram hefur komið þann 3. janúar við fínar aðstæður og enduðu brösulega þann 21. apríl á tveimur troðara breiddum í efri lyftu eftir frábæra vinnu við snjónýtingu svæðisstarfsmanna. Æfingar þessa hóps voru 4 sinnum í viku, þrjá virka daga og laugardag í einn og háfan klukkutíma í senn virka daga og tvo tíma á laugardögum. Alls 6,5 klukkustundir á viku. Alls náði hópurinn 54 æfingum, þrjár af þeim voru annarsskonar æfingar vegna lokunar í fjalli, sundæfing, bandýæfing, hjólaferð og leikir. Tvær af þeim voru ferðir annarsvegar til Siglufjarðar og hinsvegar til Akureyrar með hópinn. Þrátt fyrir brösulegan vetur féllu einungis sex æfingar niður vegna veðurs eða snjóaðstæðna allt æfingatímabilið hjá þessum hópi sem ætti að teljast mjög gott, ein í janúar, tvær í febrúar, ein í mars og tvær í apríl. Æfingar sem haldnar voru án skíða (þegar þess þurfti) voru vel sóttar og þótti krökkunum allt uppbrot skemmtilegt.




Iðkendur hópsins voru 14 talsins og á tiltölulega jöfnu getustigi. Afar dræm mætinga var hjá tveimur iðkendum en restin af hópnum var sterkur kjarni sem stundaði æfingar sínar mjög vel, samheldinn og skemmtilegur hópur. Við Ján sáum saman um þennan hóp og gékk samtarf okkar vel.
Líkt og síðastliðin ár hjá þessum hópi er ávallt lögð áhersla í upphafi vetrar á allskonar tækni-, grunnæfingar og hópefli. Áhersla var lögð á stöðugleika og jafnvægi í gegnum frí-skíðun og fjölbreyttar brautauppsetningar (model), stórsvigsbrautir, svigbrautir, leikjabrautir, samhliðarsvig, leiki og skemmtun. Þá var landslag og snjólög nýtt hverju sinni til fjölbreyttrar þjálfunar, ævintýraferða, utanbrautarskíðunar og fleira. Allt fjallið var nýtt þegar tækifæri gáfust til.
Ævintýraferðir voru afar vinsælar í lok æfinga á góðum dögum hjá þessum hópi enda leikgleðin enn mikil hjá þessum aldurshóp og mikilvægt að halda í. Hópurinn fékk því miður ekki að spreyta sig á æfingu með elsta hóp að þessu sinni þar sem aðstæður buðu ekki upp á slíkt þegar líða fór á veturinn. Við keyrðum þónokkrar ,,keppnislíkar” æfingar með starti og tímatöku



Hópurinn fékk þvímiður ekki gistikvöld í Brekkuseli líkt og undanfarin ár þar sem apríl var mjög sérstakur að þessu sinni, snjór af skornum skammti og æfingin sem höfð er samhliða gistingunni hefði ekki orðið að sömu gæðum og síðastliðin ár. Slíkt er þó afar mikilvægt að reyna að halda í enda frábært hópefli fyrir krakkana og góður undirbúningur fyrir bikarmót o.fl. Í stað gistikvöldsins héldum við smá lokaæfingu eftir Andrés fyrir krakkana og skelltum okkur með þau í klifurvegginn á Hjalteyri, enduðum heima hjá mér í mat og bingó. Skemmtilegur endir fyrir krakkana og þau kvödd inn í vorið.



Til gamans má einnig geta þess að á Öskudaginn héldum við ,,sleðarallý” á tímatöku í barnabrekku. Reynsla mín í gegnum árin hefur sýnt mér að það eru allir orðnir frekar lúnir eftir rölt dagsins og drifkrafturinn lítill í að þurfa að drífa sig á hefðbundna æfingu fljótlega eftir að heim er komið. Þá er bara eitt í stöðunni að reyna að gera eitthvað eftirminnilegt og skemmtilegt sem höfðar til krakkanna og þau hafa orku í. Þau fengu því skilaboð um að mæta með stígasleða á æfingu þennan daginn og var full mæting. Með Hörð og Júlla með okkur í liði fengu þau að fara á sleðunum upp lyftuna að 3 mastri og renndu sér í sleðarallýbraut á stígasleðum niður, þetta varð eftirminnilegt og mjög skemmtilegt fyrir krakkana. Börnin þakklàt og ánægð eftir slíka æfingu. Allt svona uppbrot býr til svo skemmtilegar minningar fyrir þau! Einnig voru bæði Siglufjarðarferðin og Akureyrarferðin mikið hópefli og skemmtun fyrir krakkana.



Þau verkefni/mót sem þessum hóp stóð til boða voru af afar skornum skammti þennan veturinn, einungis Jónsmót og Andrésarandarleikarnir. Enn og aftur, ár eftir ár er góðfúsleg ábending til mótanefndar að huga betur að skipulagi heimamóta sem voru engin þennan veturinn. Reynslan er alltaf að sýna okkur að það verður að byrja þessi mót fyrr að vetrinum og reyna að hafa þau fyrirfram ákveðin. Endilega mótið betri stefnu í þessum málum.
Nokkur barnanna unnu til glæsilegra verðlauna bæði á Jónsmóti og Andrésarandarleikunum. Efnilegir og flottir krakkar í þessum hópi. Þá unnu margir persónulegra sigra og sýndu góðar framfarir frá síðasta ári, allir lögðu sig fram og gerðu sitt besta.
Að lokum erum við stolt af þessum flotta hópi sem við Ján þjálfaðum saman í vetur, hversu kröftug, dugleg og samviskusöm þau stunduðu æfingarnar sínar þrátt fyrir afar erfiðan og má segja einhæfan vetur. Í öllum hópum eru alltaf metnaðarfullir og skemmtilegir iðkendur sem gefa manni öflugan drifkraft og endurgjöf sem þjálfara.
Skíðafélag Dalvíkur þarf að passa vel uppá og huga vel að faglegu, metnaðarfullu og uppbyggilegu utanumhaldi í þjálfun hjá öllum hópum.
15. maí 2025
Fyrir hönd okkar Ján
Harpa Rut Heimisdóttir
Samantekt skíðavertíðarinnar 2024/2025.
12 ára og eldri.
Þjálfari Sveinn Torfason.

Veturinn var að mínu mati einn sá erfiðasti sem ég hef upplifað sem þjálfari. Snjóalög voru með minnsta móti á landinu í allan vetur. En eins og svo oft áður þá gengu liftur í Böggvisstaðafjalli og starfsmenn, stjórn og svæðisstjóri unnu að mínu mati gríðarlega gott starf hvað varðar snjósöfnun, og nýtingu á þeim snjó sem við höfðum.
Upphaf skíðavertíðarinnar hjá elsta æfinga hópnum var um miðjan ágúst en þá byrjuðu þrekæfingar. Boðið var upp á tvær æfingar í samstarfi við CDALVIK, þá sáu þær Íssól og Íris um eina æfingu úti sem hófust um mánaðarmót ágúst/september. Að meðaltali mættu um 16 krakkar á þessar þrekæfingar.
Undir haust 2024 var ákveðið af alpagreinanefnd og þjálfara að byrja að skipuleggja æfingaferð erlendis, en hefð hefur verið á því að bjóða upp á slíka ferð annað hvert ár.


Í ferðina fóru 24 iðkendur, 19 foreldrar og einn þjálfari. Var það samhljóða álit allra sem í ferðina fóru að vel hafi tekist til.
Farið var með rútu frá Dalvík - Keflavík aðfaranótt 8 desember skíðað í 7 daga í Hafjell og síðan var hópurinn sóttur í Keflavík og keyrt heim þann 15. desember.
Megin markmið ferðarinnar var að lengja skíðatímabilið ásamt því að “hrista” hópinn saman. Alls var skíðað í 7 daga við mjög góðar aðstæður. Æfingamagnið var 28 klst sem skiptist ca 30% í brautarskíðum og 70% í frískíðun. Kostnaður pr. Þátttakanda í ferðinni var um 280 þúsund. En krakkarnir söfnuðu sér að mestu fyrir ferðinni með ýmsum fjáröflunarleiðum.

Skíðaæfingar hófust svo á Dalvík 27.desember þar sem við náðum þremur æfingum fyrir áramót, en samkvæmt útgefinni æfingatöflu hófust æfingar 2. janúar. Æfingar voru 4 – 5 sinnum í viku í 2 klukkustundir í senn. 14-15 ára krakkarnir voru 12 og 12-13 ára krakkarnir voru 12 svo samtals taldi hópurinn 24 krakka.
Flestir kepptu krakkarnir á einhverjum bikarmótum ásamt UMÍ sem fram fór á Akureyri.
Undirritaður sá um
skipulag æfinga, en um áramót var ákveðið að Dagur Ýmir Sveinsson myndi aðstoða við þrjár æfingar í viku, og Björgvin Björgvinsson og Skafti Brynjólfsson aðstoðuðu einnig við aðrar æfingar. Það var mjög gott að fá þá alla með á æfingar, og stundum bar þannig við að við vorum allir fjórir með hópinn. Með svo stórann og öflugan hóp iðkenda er mjög mikilvægt að geta sinnt sem flestum á þeirra getustigi. Það er klárt að einn maður getur það aldrei að fullu. Því tel ég mjög mikilvægt þegar hóparnir eru svo stórir að þá séu fastir tveir þjálfarar sem geta sinnt þjálfuninni að fullu. Það verður mjög gloppótt, þegar þjálfarar eru að “droppa” inn eftir sínum hentugleika
Eins og ég kom inn á í upphafi, var veturinn sá erfiðasti sem ég hef upplifað á mínum þjálfara ferli. Snýst það eingöngu um snjóalög og erfiðar aðstæður til æfinga. Ég dáist af því hve krakkarnir voru dugleg að mæta á æfingar og gera sitt besta, þó svo að oft hafi það verið á mörkunum að hægt væri að skíða.

Enn og aftur sýnir það sig hvað snjó byssurnar eru nauðsynlegar, án þeirra hefði veturinn orðið að mjög litlu. Sama má segja um gott starf svæðis-starfsmanna varðandi útsjónarsemi í snjósöfnun og “yfirbreiðslu” snjóa á þunnum svæðum.
Skíðafélag Dalvíkur sendi 18 krakka til þátttöku á UMÍ 2024 sem fram fór á Akureyri.

Krakkarnir komu heim með 5 gullverðlaun, 2 silfurverðlaun og 3 bronsverðlaun
Bikarmeistari SKÍ 12-13 ára drengir Barri Björgvinsson (12ára)
3.sæti í bikarkeppni SKÍ 12-13 ára drengir Hörður Högni Skaftason.

Eftirtektarvert er árangur Barra Björgvinssonar sem vann öll nema eitt (lenti í öðru sæti) bikarmót SKÍ í vetur í flokki 12-13 ára drengja. Samhliða því varð hann fjórfaldur Unglingameistari í sama flokki.
Félagið átti marga flotta fulltrúa á 49. Andrésar andarleikunum sem haldnir voru, en um 90 krakkar tóku þátt á vegum félagsins. Skemmst er frá því að segja að við komum heim með 12 titla þaðan, 14 silfur og 7 brons ásamt annara verðlauna í alpagreinum og brettum.

Fullorðinsflokkur:
Skíðafélagið átti tvo fulltrúa í fullorðins flokki í ár. Það voru þeir bræður Torfi Jóhann Sveinsson og Óskar Valdimar Sveinsson. Æfðu þeir báðir á Akureyri með Skíðafélagi Akureyrar. Þá tóku þeir þátt í verkefnum á vegum SKÍ - hæfileikamótun.
Skíðamót Íslands var var haldið í Oddskarði við góðar aðstæður. Þar kepptu þeir bræður báðir.
Torfi Jóhann lenti í 3.sæti í svig og gerði sína bestu FIS punkta.
Þá varð Torfi einnig Bikarmeistari SKÍ í flokki 18-21 árs og í flokki Fullorðna.

Að lokum vil ég þakka þjálfurum félagsins, stjórn, starfsmönnum skíðasvæðisins, foreldrafélaginu og foreldrum skíðabarna fyrir góðan vetur.
Með góðri skíðakveðju.
Sveinn A. Torfason.
Tímabil 2024 Brettadeild Skíðafélags Dalvíkur
Aðalmarkmiðið mitt á þessu tímabili var að kenna nemendum góðan grunn í snjóbretti tækni. Þetta er grunnurinn fyrir alla snjóbrettaíhluti eins og boardercross, slopestyle, freeride og backcountry.
Ég reyndi líka að fjalla um alla þætti snjóbrettaiðkunnar. Við vorum að bretta í púðri. Við æfðum tækni í hörðu færi (icy conditions). Þegar það var hægt, græjuðum við smá park með slide og pöllum.
Auka:
- Lærdómur frá þremur frjálsíþrótta snjóbrettaþjálfurum frá CIOS Haarlem (íþróttaskóli) frá Hollandi,
- Kynning á Avalanche senditæki undir forystu leiðsögumannana frá Avalanche Science leiðsöguskólanum (Boise, Idaho).
- Kennsla hjá leiðbeinanda frá Spáni sem starfar hjá Icelandsnowsports (skíðaskóli í Hlíðarfjalli),
Ég vil líka þakka Viktori og Soffíu fyrir alla hjálpina og aðstoðina!!
Niðurstöður
Andrésar andar leikarnir 2024 Brettastíll (Slopestyle)
Strákar 9 ára Baltasar Ríó Ingason
Strákar 10 ára Einar Ísaksson Stúlkur 9-10 ára Adriana Maria Molina Strákar 11 ára Garpur Viktorsson Stúlkur 13-14 ára Lea Dalstein Ingimarsdóttir
Andrésar andar leikarnir 2024 Brettakross (boardercross)
Drengir 9 ára Jakob Eggert Brynjarsson Drengir 10 ára Einar Ísaksson
Strákar 11 ára Garpur Viktorsson Stúlkur 11-12 ára 1.sæti Lukka Viktorsdóttir 2.sæti Lovísa Lilja Friðjónsdóttir Drengir 12 ára 4.sæti David Pierzga Stelpur 13-14 ára 2.sæti Lea Dalstein Ingimarsdóttir 3.sæti Maya Alexandra Molina 4.sæti Àsdís Inga Gunnarsdóttir
Það kepptu fjórir krakkar. Allir í U13: Þessir fengu medalíur. Slopestyle U13: 1. Sæti Lukka Viktorsdóttir 3.sæti Lovísa Lilja Friðjónsdóttir Big air U13: 3.sæti Lukka Viktorsdóttir
Næsta tímabil
Fyrir næsta tímabil myndi ég vilja gefa nemendum meiri æfingu í Skipta brettun (switch riding) (nauðsynlegt til að stökkva 180) brekkubrögð (undirstöðu fyrir slopestyle) og slalom/boardercross.
Tveir tímar á viku duga ekki til að þjálfa nemendur fyrir keppni í viðbót við læra góða snjóbrettatækni. Nemendur sem mættu tvisvar í viku og voru einnig að æfa sig sjálfir þróuðust best.
Tillaga:
- Fleiri tímar. Til dæmis 1,5 klukkustund á kvöldi eða fleiri kvöld. Og aukalega æfing á laugardag eða sunnudag.
- Aukaþjálfun fyrir nemendur sem taka þátt í keppni.
- Innri starfsemi: hvernig á að sjá um snjóbrettið, Vax og brúnir, myndbands kvöld. (video kvöld)
- Innkaup á efni eins og; kassar, teinar (rails), töfrastafir (magic sticks). Fjármagn í það?
- Æfa stundum í Hlíðarfjalli.
- Aukanámskeið á laugardögum fyrir byrjendur, til að fá fleiri og nýja nemendur inn. (Ég hef fengið þá beiðni frá foreldrum nokkrum sinnum.) Það ætti að auðvelda þeim til að þeir passi inn í núverandi hóp.
Fyrir áframhald finnst mér það áskorun að setja upp þjálfunarnámskeið fyrir snjóbrettakennarar. Þessi þjálfun er möguleg frá 16 ára aldri. Þjálfunin ætti að fara fram á 3 til 4 dögum. Engin þjálfun er fyrir snjóbrettakennara á Íslandi ennþá. Árin 2021 og 2022 kenndi ég snjóbrettakennaranámskeið fyrir Framhaldsskólann í Austur-Skaftafellssýslu í Oddsskarði.
Ég hafði mjög gaman af af því að þjálfa krakkana þetta árið. Takk fyrir þetta tækifæri! Mig langar að halda áfram á næsta ári til að þróa snjóbrettahópinn enn frekar. Ég vona að það verði hægt að framkvæma það með fleiri æfingatímum.
Á næsta tímabili hef ég meiri tíma til að koma og þjálfa á Dalvík.
Vincent Drost