Sölu- og skiptimarkaður skíðabúnaðar í Brekkuseli og auka skráningadagur

Laugardaginn 3.desember ætlar foreldrafélag Skíðafélag Dalvíkur að hafa opið í Brekkuseli fyrir sölu-og skiptimarkað á skíðabúnaði frá kl. 13:00 - 16:00. Þar gefst fólki kostur á að koma með skíðabúnað og skíðaföt eða félagsgalla og selja á sanngjörnu verði eða hafa hagstæð skipti. Því er upplagt að kíkja í geymsluna og gera klárt að nýju fyrir komandi vertíð. Athugið að þeir sem vilja selja þurfa sjálfir að vera á staðnum eða sjá um sína sölu. Á sama tíma ætlar Skíðafélagið að bjóða upp á auka skráningadag fyrir æfingar og vetrarkort á sama hagstæða verðinu og sett var upp hér um daginn. Þá er einnig hægt að koma og fylla á þau vetrarkort sem þegar hefur verið greitt fyrir. Láttu sjá þig og gerðu góð kaup Foreldrafélag Skíðafélags Dalvíkur