Styrktaraðilar óskast...

Vegna áskorana þá látum við vaða hér á miðlum okkar.
En eins og flestir vita þá er ansi snjólétt þennan veturinn og þrátt fyrir þokkalega tíð eru snjóalögin þunn og viðkvæm. Skíðafélagið er hreinlega búið með það fjármagn og rúmlega, sem ætlað var í snjóframleiðslu í vetur og því langar okkur að leita til ykkar.
Steypustöð Dalvíkur hefur nú þegar riðið á vaðið og lagt okkur til einn sólarhring í snjóframleiðslu eða 250.000 krónur. Okkur langar að vita hvort fleiri fyrirtæki eða einstaklingar vilji leggja okkur lið til að styrkja framleiðsluna og taka einn hnikk í viðbót og tryggja það sem fyrir er. Hafði samband við Hörð á hordur@skidalvik.is eða í 8201658 ef þið hafið spurningar.
Hægt er að leggja inn á reikning 490381-0319 0177-26-000451
Þá má að sjálfsögðu líka kaupa vetrarkort og styrkja félagið þannig.