Svig mót um helgina og flott veðurspá.

Þrátt fyrir ansi krefjandi aðstæður í vetur dugar framleiddi snjórinn okkur til að halda
FIS ENL mót um helgina í svigi. Keppt verður í Neðri Lyftubrekku og er start klukkan 10:15 báða dagana.

Mótið mun raska almennri opnun hjá okkur vegna hversu takamarkað pláss er í brekkunni.
Á morgunn laugardag 31. janúar verður opið fyrir almenning í Barnabrekku frá 10-12:30
síðan opnar Neðri Lyftubrekka almenningi klukkan 12:30 sirka og opið til 16:00.

Á sunnudaginn 1. febrúar verður eingöngu opið í Barnabrekkuna en það verður frítt í hana.
Hvetjum fólk til að kíkka við og taka nokkrar beyjur með krökkunum, horfa á mótið og njóta.