Þrekæfingar

Skíðafélag Dalvíkur mun standa fyrir fjölbreyttum og skemmtilegum þrekæfingum tvisvar í viku undir vaskri stjórn Sveins Torfasonar þjálfara.  Æfingarnar eru í boði fyrir alla unglinga 7. -10. bekkjar sem vilja koma sér í form og eru þær óháðar annarri íþróttaiðkun.
Á mánudögum er um útiæfingar að ræða frá kl. 17:30-18:30 og á miðvikudögum verður æft í íþróttahúsinu frá kl. 18:-19:00.

Æfingar hefjast 12. september og þeim lýkur 12. desember.
Skráning fer fram í gegnum æskuræktina og er æfingagjald 12.000 fyrir tímabilið.

 Allar nánari upplýsingar gefur Sveinn Torfason í síma 861-6907