Þrekæfingar Þol - snerpa - styrkur

Skíðafélag Dalvíkur mun standa fyrir fjölbreyttum og skemmtilegum þrekæfingum tvisvar í viku undir vaskri stjórn Sveins Torfasonar þjálfara.  Æfingarnar eru í boði fyrir öll ungmenni frá 7. bekk og eldri og eru óháðar annarri íþróttaiðkun.

Á mánudögum er um útiæfingar að ræða frá kl. 17:30-18:30 og á fimmtudögum verður æft í íþróttahúsinu frá kl. 18:-19:00.

Æfingar hefjast 16. september og þeim lýkur í byrjun desember.
Skráning fer fram í gegnum æskuræktina og er æfingagjald 14.000 fyrir tímabilið.

 Allar nánari upplýsingar gefur Sveinn Torfason í síma 861-6907