Töfrateppið verður að veruleika.

Töfrateppið á Dalvík komið á sinn stað – framkvæmdir ganga vel

Eins og margir vita eru stórar framkvæmdir í gangi á Skíðasvæði Dalvíkur. Fyrir tilstuðlan Jökuls Bergmann og Arctic Heli skiing sem ákvað að gefa félaginu töfrateppið sem afmælisgjöf sína.

Framkvæmdirnar við töfrateppið hafa gengið vel síðustu vikur. Nú er búið að reisa töfrateppið og steypa sökkla undir yfirbyggingu þess, sem verður næsti áfangi verkefnisins.

Töfrateppið er um 70 metra langt og verður með yfirbyggingu sem veitir skjól fyrir veðri og vindum. Það mun stórbæta aðstöðu fyrir yngstu skíðaiðkendurna og byrjendur, sem geta þá komist upp brekkuna án þess að þurfa að nota hefðbundnar skíðalyftur.

Samhliða uppsetningu teppisins hefur verið unnið að umfangsmikilli landmótun á svæðinu. Brekkurnar í kringum töfrateppið hafa verið mótaðar með það að markmiði að skapa öruggt byrjendasvæði þar sem börn og aðrir nýliðar geta æft sig við góðar aðstæður. Landmótunin mun jafnframt bæta nýtingu svæðisins og auðvelda snjóframleiðslu og undirbúning fyrir skíðavertíðina.

Starfsfólk Arctic Heliskiing hefur lagt mikla vinnu í verkefnið ásamt starfsfólki og sjálfboðaliðum Skíðafélags Dalvíkur með aðstoð Steypustöðvar Dalvíkur, Tréverks og Electro. Samvinna þessara aðila hefur verið lykilatriði í að koma framkvæmdunum áfram.

Nýja töfrateppið og landmótunin í kringum það eru stórt skref í áframhaldandi uppbyggingu Skíðasvæðis Dalvíkur, þar sem lögð er áhersla á góða aðstöðu fyrir börn og fjölskyldur.

Við hlökkum til að taka nýja svæðið í notkun!

Hér má sjá nokkrar myndir.