Torfi Jóhann á HM unglinga í Narvik Noregi.

Torfi Jóhann á þeið til Narvik í Noregi.
Torfi Jóhann á þeið til Narvik í Noregi.

Á dögunum birti Skíðasamband Íslands lista yfir þá þátttakendur sem munu keppa fyrir Íslands hönd á heimsmeistaramóti unglinga sem fram fer í Narvík í Noregi dagana 5-15 mars nk.
Skíðafélag Dalvíkur á einn fulltrúa í hópnum, en það er Torfi Jóhann Sveinsson sem mun keppa í svigi og stórsvigi.
Torfi heldur utan nk. sunnudag og mun æfa á svæðinu fram að keppni sem verður föstudaginn 13.mars stórsvig og sunnudaginn 15.mars verður keppt í svigi.

Til lukku með þetta Torfi Jóhann og gangi þér vel.

Hægt er að fylgjast með gangi mála í Narvik hér