Fréttir

Torfi Jóhann á HM unglinga í Narvik Noregi.

Á dögunum birti Skíðasamband Íslands lista yfir þá þátttakendur sem munu keppa fyrir Íslands hönd á heimsmeistaramóti unglinga sem fram fer í Narvík í Noregi dagana 5-15 mars nk. Skíðafélag Dalvíkur á einn fulltrúa í hópnum, en það er Torfi Jóhann Sveinsson sem mun keppa í svigi og stórsvigi. Torfi heldur utan nk. sunnudag og mun æfa á svæðinu fram að keppni sem verður föstudaginn 13.mars stórsvig og sunnudaginn 15.mars verður keppt í svigi. Til lukku með þetta Torfi Jóhann og gangi þér vel. Hægt er að fylgjast með gangi mála í Narvik á heimasíðu mótsins.
Lesa meira

Fullorðinsflokkurinn keppti í Oddskarði.

Um helgina stóð til að keppa í tveimur stórsvigum og einu svigi í Oddskarði. Fyrsta stórsvig helgarinnar var einnig hluti af bikarmótaröð SKÍ samhliða FIS-ENL móti, en hin mótin voru engöngu FIS-ENL mót. Eftir að keppni lauk í stórsvigi á laugardag, ákváðu mótshaldarar í samráði við þjálfara og keppendur að klára einnig svig mótið. En veðurspá fyrir sunnudag leit ekki vel úr. Það má því segja að dagurinn hafi verið nokkuð langur, en aðstæður og veður til keppnishalds í Oddskarðinu voru með besta móti, hægur vindur sól og frost. Okkar menn stóðu sig með príði og má sjá árangurinn hér fyrir neðan.
Lesa meira

Frábærar aðstæður til mótahalds um sl.helgi.

Eins og áður hefur komið fram var Bikarmót SKI/FIS-ENL mót haldið í Böggvisstaðafjalli um sl.helgi. Þrátt fyrir lítil snjóalög voru aðstæður til mótahalds með besta móti. Landsþekkta "parketið" í fjallinu var úr efstu hillunni og á sunnudeginum lék sólin við keppendur, áhangendur og starfsmenn mótsins. Skíðafélag Dalvíkur átti fjóra keppendur á mótinu um helgina, en það voru þeir Matthías Helgi Ásgeirsson sem er að hefja sitt fyrsta ár í fullorðinsflokki, þá voru þeir bræður Óskar Valdimar og Torfi Jóhann Sveinssynir mættir til leiks og á sunnudeginum dró Dagur Ýmir Sveinsson fram fjalirnar rifjaði upp gamla takta. Strákarnir stóðu sig allir með mikillri príði.
Lesa meira